PFAS er samheiti yfir 4700 fjölflúor iðnaðarframleidd efni sem er nær ómögulegt at brjóta niður í náttúrunni
Á vesturströnd Jótlands í Danmörku leikur grunur á leka á PFAS og nú ætla dönsk yfirvöld að kanna, hvort plastið komi úr blöðum vindmyllnanna á svæðinu.
Per- og fjölflúoríð alkýl efni, einnig kölluð per- og fjölflúoruð efni eða mjög flúoruð efni, er samheiti á meira en 4.700 iðnaðarframleiddum efnum.
Um daginn kom í ljós að 180 nautgripir, sem eru á beit á Agger Tange meðfram Norðursjó á Jótlandi eru eitraðir og því má ekki slátra þeim til að selja kjötið. Grunur leikur á að kýrnar hafi eitrast af PFAS í sjávarfroðu frá blöðum vindmyllnanna. Jane Hansen hjá sænsku umhverfisverndarstofnuninni segir við Ekstra Bladet:
„Við staðfestum í sumar, að við fundum PFAS í litlum mæli í sjónum um allt landið. Við vitum líka að það er, að því er virðist, meiri styrkur í sjónum við vesturströndina. Við vitum líka að PFAS getur þjappast saman í háan styrkleika í sjávarfroðunni.“
Á nokkrum svæðum er beinlínis erfitt að finna staðina, sem PFAS kemur frá. Þetta á meðal annars við um Harboøre og Agger Tange. Í ljósi þess verður nú meðal annars kannað, hvort almennt meiri styrkur sé einnig á landi á vesturströndinni. Verða sýni tekin bæði 1 km frá sjónum og einnig 10 km inn í landið.
Rannsóknir verða framkvæmdar af Náttúrustofnuninni, sem mun kanna innihald PFAS. Danska umhverfisverndarstofnunin mun einnig framkvæma eigin rannsóknir, sem miða að því að leiða í ljós hvort leki sé frá glertrefjavörum, þar á meðal vindmyllublöðum.
Er PFAS hættulegt heilsu manna?
Sænska Náttúruverndarsamtökin svara spurningunni þannig:
Fjöldarannsóknir á mönnum sýna tengsl milli útsetningar fyrir tilteknum PFAS efnum og lakari bóluefnasvörunar hjá börnum, lifrarskemmds, hækkaðs magns blóðfitu, þarmasjúkdóma og skjaldkirtilssjúkdóma. Tvö þekktustu PFAS efnin PFOS og PFOA eru einnig talin krabbameinsvaldandi efni og geta haft neikvæð áhrif á æxlun. Hversu mikið magn maður verður fyrir, hvenær á lífsleiðinni, og hversu lengi, er talið hafa afgerandi áhrif. En enn hefur ekki fengist næg reynsla af flestum þeirra 4.700 PFAS efna sem eru á markaðnum.