AF BIDEN STÓRA BRÓÐUR & SHOLZ LITLA BRÓÐUR

Olav Scholz kanslari Þýskalands var kallaður til Washington fyrir helgi. Þýskum blaðamönnum var bannað að ferðast með kanslaranum til Washington. Engar óþægilegar spurningar, bara vinnuferð litla bróður. „Hvers vegna ferðu þangað, útskýrðu fyrir okkur,“ mælti Fredrich Merz leiðtogi kristilegra dómókrata í Bundestag. Af þessu tilefni birti tímaritið Stern – Stjarnan meðfylgjandi mynd á forsíðu af litla bróður Olav Scholz með stóra bróðir Joe Biden. Áfram Stóri Bróðir. Myndin segir allt sem segja þarf, ekki satt? „Heppni áskotnast Joe Biden … Í deilum við Rússland og Kína höldum við áfram að fylgja USA. Ein Gluck, dass er Joe Biden gibt – im Konflick mit Russland und China können wir uns wieder die USA verlassen.

Víðtæk og vaxandi mótmæli eru í Þýskalandi en auðvitað eru þau þögguð. Kollegar mínir virðast telja að með því að þegja & þagga sé óþægindum sannleika bægt frá. Petr Bystr þingmaður AfD sem á sæti í utanríkismálanefnd Bundestag segir stöðugt fleiri vísbendingar um að Bandaríkin hafi egnt Rússland í stríð. Samningar hafi nánast verið í höfn milli Rússlands og Úkraínu síðastliðið vor en Bandaríkin og Bretland hafi komið í veg fyrir frið. Bystr segir að ef marka megi fréttir um Nord Stream séu Bandaríkin ekki vinir Þýskalands; nicht unseren freund. Á Evrópuþinginu hefur ítrekað verið krafist rannsóknar og bent á aðild Ameríkana og Norðmanna að Nord Stream.

Biden og Boris Johnson komu í veg fyrir friðarsamninga í Istanbul í apríl 2022. Boris stormaði til Kænugarðs 9. apríl þegar virtist stefna í friðarsamninga og lofaði vopnum. Mogginn segir að Zelinskyi sé Churchill okkar tíðar. Zelinskyi bannar málfrelsi, bannar stjórnarandstöðu, bannar frjálsa fjölmiðla, ofsækir trúaða, fangelsar og drepur stjórnarandstæðinga. Níu dögum eftir að stríðið hófst skaut leyniþjónusta Zelinskyi samningamanninn Denys Kireyev í höfuðið. Kireyev hafði talað fyrir friðarsamningum. Lík hans var skilið eftir á götu í Kænugarði öðrum til viðvörunar. Hvers á Churchill að gjalda? Hvað hefur komið fyrir Moggann minn? Hvenær opnast augu vina minna? …

SPRENGING Í OHIO

Af þessu tilefni er rétt að benda á sprengingu í East Palestine Ohio 3. febrúar með skelfilegum afleiðingum svo var sem kjarnorkuský yfir bænum. Atburðinum hefur verið líkt við Chernobyl, skelfileg mengun með hroðalegum afleiðingum fyrir náttúru og heilsu fólks, margt er á huldu um orsakir. Joe Biden hefur ekki séð ástæðu til að heimsækja íbúa. Innviðir í Ameríku eru í niðurníðslu; flugvellir, járnbrautir, hafnir, innrás á suðurlandamærum glæpagengi smyglandi fetanyl sem árlega fellir 70.000 ungmenni ásamt yfirþyrmandi fátækt sem viðhaldið er í borgum demókrata. Árlega falla mun fleiri fyrir dópvæðingu Ameríku vegna opinna landamæra en tuttugu ára Víetnamstríði. Á sama tíma spreðar Biden yfir hundrað milljörðum dollara í stríðsrekstur í Úkraínu. Augu Ameríku eru að opnast, fólk áttar sig á að fátækt og kynþáttahyggja eru valdatæki demókrata. Ameríka er að sjá hvers kyns Biden er, Olav lýtur honum líkt og Stern bendir á.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila