Af laumuhlustun & skápahommum

Hallur Hallsson skrifar:

Af laumuhlustun & skápahommum

Framvarðasveitir Ríkislögreglustjóra á fjölmiðlum okkar eru í yfirdrifi að dreifa ríkisáróðri í samvinnu við lyfjarisa. Blaða- & fréttamenn eru skilgreindir af fjölmiðlanefnd ‘framvarðasveitir‘ sem flytja íslenskri þjóð ríkisáróður og þiggja til þess ríkisfé. Íhugið það gott fólk. Fjölmiðlar okkar flytja allir eina og sömu fréttina um covid. Sama á við um fréttir erlendis. Allir flytja sömu fréttina sem bergmálar um Ísland, Bretland, Þýskaland, Frakkland, Bandaríkin, Kanada á rauntíma; fréttir eru samstilltar Reuter, AFP, AP, CNN, BBC og rest í eigu hinna ofsaríku. Þannig er hlutum varið um allan hinn vestræna heim undir yfirskriftinni ‘Trusted News Iniative‘. Allt er þetta yfirlýst og skráð. 

Frjáls pressa er ekki lengur við lýði á Vesturlöndum; lýðréttindi eru skert, málfrelsi heft, fólk sprautað, ferðir heftar, eftirlit alls staðar, umframdauði falinn. Ríkismiðlar Evrópu eru í bandalagi með davóskum fjölmiðlum beggja vegna Atlantsála um samstarf til að tryggja ofurvald hinna ríku og voldugu í bandalagi við glóbal-popúlíska ‘mennta-elítu‘ Sameinuðu þjóðanna og 101 metrópól veraldar. Allir segjast hafa háleit markmið. Fjölmiðlanefnd kveðst vinna að ‘miðlalæsi almennings‘.

Frjáls umræða jaðarsett

RÚV hefur 6.6 milljarða króna milli handa til þess að þjóna og efla sívaxandi ríkisvald. Markmið RÚV er skýrt: Ísland skal sósíalískt lýðveldi, fullveldi þjóðarinnar skal selt undir erlent vald hinna ofsaríku og búrókrata. Helstu fjölmiðlar okkar dreifandi ríkisáróðri fá 380 milljón króna ríkisstyrki; Stöð 2, Visir, Mogginn, Fréttablaðið, DV, Stundin vinnandi með facebók, youtube, google og rest jaðarsetja frjálsa umræðu. Þessir miðlar hafa fengið samheitið falsmiðlar því þeir selja sig undir eina ríkisskoðun. Nú býður sjónvarpstöðin N4 á Akureyri upp í dans út á landi, föl fyrir 100 milljóna ríkisfé og vill sameinast fréttadeild Rúvak um að dreifa ríkisáróðri. Svona breiðist veiran út. Það er bara pláss fyrir eina skoðun á Íslandi, eina ríkisskoðun. Mörg okkar munum Martein Mosdal. 

Hvar óma raddir hlustenda?

Ein útvarpstöð leyfir öllum skoðunum að heyrast á öldum ljósvakans. Útvarpsstöð þessari er refsað.  Útvarp Saga fær ekki krónu í ríkisstyrk og sætir linnulitlum ágjöfum góða fólksins á ríkisstyrktu fjölmiðlunum. Hafið þið hlustað á raddir hlustenda á Sögu, klukkustund eftir klukkstund alla daga. Spyrjið: leyfir RÚV röddum hlustenda að hljóma? 

Á dögunum var Arnþrúður Karlsdóttir útvarpstjóri í viðtali á Stöð 2. Af því tilefni þurfti fréttamaður að niðurlægja hlustendur Sögu. Hann kvaðst hafa hitt miðaldra kennara sem hefði sagt að heyra mætti hverjir væru að laumuhlusta á Útvarp Sögu. Já sæll, skrítið fólk laumuhlustar Sögu. Þetta fannst fréttamanninum fyndið.

Sú var tíð að það voru bara til skápahommar í felum. Það þurfti hugrekki til að koma út úr skápnum. Nú þykir sjálfsagt að vera hommi og enginn þarf að fela sig. Getur verið að sá dagur renni brátt upp að fólk kannist ekki við að hafa hlustað á ríkisstyrkta Stöð 2  RÚV ropandi úr iðrum en allir hlusti á frjálst og óháð Útvarp Sögu

Sannleikurinn finnur alltaf leið að lýsa upp myrkrið …

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila