Afstaða Bill Gates kippir fótunum undan málflutningi loftslagshamfarasinna

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Pál Vilhjálmsson, blaðamann og bloggara í Síðdegisútvarpinu um breytta afstöðu Bill Gates til loftslagsmála og þau áhrif sem hún getur haft á stjórnmál, fjölmiðla og alþjóðlega umræðu. Páll sagði í þættinum að yfirlýsingar Gates væru sögulegar og kippu fótunum undan málflutningi þeirra sem hafa gert loftslagshamfarir að pólitískum trúarbrögðum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Sinnaskipti helsta talsmanns loftslagshreyfingarinnar

Páll benti á að í nýrri grein sem Bill Gates birti á vef sínum GatesNotes viðurkenni hann að hlýnun jarðar muni ekki leiða til heimsendahamfara. Flest byggileg svæði jarðar verði áfram vel lífvænleg og því sé röng áhersla að beina öllum kröftum að því að draga úr losun koltvísýrings. Miklu skynsamlegra sé að bæta lífsskilyrði fólks í þróunarlöndum, uppræta fátækt og bæta heilsu. Að sögn Páls er þetta grundvallarbreyting hjá manni sem sjálfur hafi í áratugi verið einn helsti fjármögnunaraðili loftslagsverkefna. Hann sagði í þættinum að með þessu viðurkenni Gates að forsendur loftslagshreyfingarinnar hafi verið rangar og að sú hræðsluáróðurstækni sem notuð hafi verið um áratugaskeið sé orðin úrelt.

Loftslagshamfarir gerðar að trúarbrögðum

Páll sagði að umræða um loftslagsmál hafi þróast úr vísindalegri skoðun yfir í trúarlega hreyfingu sem hann kallaði „loftslagshirkjuna“. Þar hafi verið boðað heimsendi, sektarkennd og skilyrðislaus trú á tölvulíkön sem enginn geti sannreynt. Hann sagði að fjölmiðlar, þar á meðal Ríkisútvarpið, hafi stutt þessa sýn með einhliða frásögnum og útilokað gagnrýni vísindamanna sem andmæltu kenningunni um manngerða hlýnun. Í þættinum sagði Páll að sú staðreynd að Bill Gates sem hafi verið „hátíðarmessuprestur“ loftslagshirkjunnar, hafi nú skipt um skoðun, sé martröð fyrir þá sem hafa byggt feril sinn á loftslagshamfaraspám. Það neyði fjölmiðla og stjórnmálamenn til að endurskoða eigið hlutverk í því að viðhalda áróðri sem hafi kostað skattgreiðendur um allan heim gífurlega fjármuni.

Vísindaleg endurskoðun og raunsæi

Páll benti á að náttúrulegar hitasveiflur hafi fylgt mannkyninu frá upphafi og minnti á hlýskeið á miðöldum og svokallaða litlu ísöld. Að mati Páls sýna þessi tímabil að breytingar á hitastigi jarðar séu ekki nýtt né einvörðungu manngerð fyrirbæri. Hann sagði að aðeins þrjú prósent koltvísýrings í andrúmsloftinu væru af mannavöldum og að það væri rangt að ætla að þessi litla breyting gæti valdið heimsendahlýnun. Páll sagði í þættinum að sinnaskipti Gates væru fyrsta merki um að nýtt raunsæi væri að ná fótfestu í umræðunni. Nú verði erfiðara fyrir stjórnmálamenn að réttlæta nýja skatta og boða „björgun jarðarinnar“ með dýrum aðgerðum þegar einn helsti talsmaður þeirra hafi sjálfur hafnað forsendunum.

Yfirlýsing Bill Gates ætti að verða stjórnmálamönnum víti til varnaðar

Að lokum sagði Páll að yfirlýsing Gates ætti að verða stjórnmálamönnum víti til varnaðar. Þeir sem hingað til hafi fylgt loftslagshreyfingunni af trúarlegum ákafa verði nú að viðurkenna að málflutningurinn standist ekki lengur vísindalega skoðun. Hann sagði að þetta ætti einnig að hafa áhrif á Ísland, þar sem stjórnvöld hafi gengið lengra í loftslagsyfirlýsingum en jafnvel þeir sem fyrst hófu baráttuna.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila