
Í Menntaspjallinu í dag var rætt um hvernig almenningur getur haft áhrif á lagasetningu með því að vera virkir þátttakendur í því að senda inn umsagnir og ábendingar í samráðsgátt stjórnvalda. Í þættinum voru gestir Valgerðar Jónsdóttur þeir Logi Kjartansson lögmaður og Leifur Árnason flustjóri.
Í þættinum var rætt um þær áhyggjur sem fram hafa komið í tengslum við tvær fyrirhugaðar lagasetningar sem breytingar á lögum um grunnskóla og breytingar á löggjöf um sjúkraskrár.
Breytingar á grunnskólalögum gætu verið afturför
Hvað varðar breytingar á lögum um grunnskóla var bent á í þættinum að fram hafi komið ábendingar inn í samráðsgáttina en þar hafa ýmsir aðilar, þar á meðal samtök iðnaðarins og einstakir fræðimenn, sent inn umsagnir þar sem varað er við því að breytingarnar gætu verið afturför. Ekki væri á það bætandi að vera í afturför þegar kemur að menntamálum enda sé málaflokkurinn þegar mjög illa settur og stór hluti barna komi ekki læs út úr grunnskóla.
Breytingar á lögum um sjúkraskrár hefur alvarlegar afleiðingar
Hvað varðar breytingar á lögum um sjúkraskrár kom fram að fyrirhugaðar breytingar valdi áhyggjum hjá fjölmörgum, sérstaklega varðandi persónuvernd og réttindi sjúklinga. Þessar breytingar hafi fengið umsagnir þar sem meðal annars er bent á að þær gætu haft neikvæð áhrif á friðhelgi einkalífsins og mannréttindi.
Hvetja fólk til að nýta sér samráðsgáttina
Í þættinum hvöttu Valgerður og Logi Kjartansson og Leifur Árnason fólk til þess að nýta sér samráðsgáttina og koma þar fram með sínar hugmyndir og ábendingar um það sem mætti fara betur.
Hlusta má á ítarlegri umræður í spilaranum hér að neðan
