Ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra afhjúpar vinnubrögð hennar

Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness.

Ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um að heimila hvalveiðar með ströngum skilyrðum afhjúpar hvernig vinnubrögð ráðherrans hafa verið því skýrsla Fagráðs um velferð dýra sýnir fram á að þau atriði sem Hvalur hf hefur unnið að og myndu fækka frávikum voru tilbúin áður en ákvörðun um hvalveiðibann var sett. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Vilhjálms Birgissonar formanns Verkalýðsfélags Akraness í þætti Arnþrúðar Karlsdóttur og Péturs Gunnlaugssonar í dag.

Vilhjálmur segir að því hefði ráðherra átt að koma að máli við hval áður en bannið var sett en ekki hafi verið rætt við Hval um þessi atriði fyrr en 10.júlí síðastliðinn.

„þessi skýrsla sem kom út um daginn sýnir það að þau atriði sem Hvalur hf hefur verið að vinna að munu að öllum líkindum leiða til þess að þessum frávikum munu fækka. Þetta sýnir bara hverslags vinnubrögð þetta eru hjá matvælaráðherra því hún átti strax í maí eða júní að kalla eftir skýringum frá Hval hf en það gerði hún hins vegar ekki og það var ekki rætt við Hval hf fyrr en 10 júlí samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir og Hvalur svarar þann 12.júlí og grein frá því hvað þeir séu búnir að gera svo það liggur fyrir að matvælaráðherra er með sannarlega allt niður um sig í þessu máli“

Hann segir að málið snúist í raun ekki um hvort fólk sé á móti hvalveiðum heldur um gerræðisleg vinnubrögð ráðherra því það sé Alþingis að taka ákvörðun um hvort hvalveiðar eigi að vera leyfðar eða ekki.

„en að einn ráðherra skuli reyna að tikka inn í einhver pólitísk box hjá sér og nota vald sitt með þessum hætti finnst mér ekki vera boðlegt og það liggur alveg fyrir að þetta mál mun enda fyrir dómstólum“ segir Vilhjálmur.

Kvikmyndastjörnurnar ættu að líta sér nær

Hann segir þá hótun kvikmyndastjarna í Hollywood að slaufa Íslandi sem stað fyrir kvikmyndaframleiðslu vegna málsins vera hræsni og að stjörnurnar ættu að líta sér nær því þeirra samfélag sé heldur betur ekki til fyrirmyndar, t,d hvað varði skotvopnalöggjöfina sem meðal annars valdi því að börn láti lífið.

„menn verða bara að fyrirgefa mér að ég setji þetta í þetta samhengi en ég held að þetta fólk eigi að líta sér nær áður en það fer að stilla okkur upp með þessum hætti“

Hlusta má á viðtalið í spilaranum hér að neðan

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila