Albanskir eiturlyfjahópar borga innflytjendum fyrir að fara yfir Ermarsundið – ef ólöglegu innflytjendurnir samþykkja að vinna fyrir glæpahópana eftir að þeir koma til Bretlands. Albönsku eiturlyfjahóparnir nota flóttamannabúðirnar í Norður-Frakklandi sem „ráðninga-miðstöðvar fyrir glæpastörf.“ Þetta kemur fram í rannsókn BBC News.
BBC heimsótti albanskan bæ, þar sem 70% íbúanna höfðu flúið til Bretlands
Í auglýsingum í albönskum fjölmiðlum er boðið upp á smygl til Bretlands fyrir 3.000 pund frá Brussel, París eða Dunkerque. Albanir vinna oft með kúrdískum og íröskum glæpaklíkum sem stjórna flestum ólöglegum bátsferðum.
Fyrir þá sem hafa ekki efni á því að borga þessa peninga eru hins vegar til lausnir. Þeir geta „unnið“ af sér kostnaðinn með því að vinna verk fyrir albönsku eiturlyfjahópana.
Mikil aukning hefur orðið á þeim fjölda Albana, sem fara yfir Ermarsund á smábátum. Það sem af er ári samsvara þeir þriðjungi allra ólöglegra innflytjenda til Bretlands. Miklum hluta þeirra tekst að fá hæli, þrátt fyrir að þeir séu efnahagslegir innflytjendur. BBC News hefur heimsótt albanskan bæ þar sem 70% íbúanna hafa flúið til Bretlands.