Ali Khamenei féll í loftárás Ísraela á Teheran

Ali Khamenei, æðsti leiðtogi Írans, er látinn eftir að loftárás Ísraela hæfði bústað hans í Teheran. Háttsettur ísraelskur embættismaður staðfesti andlátið við Fox News. Engin yfirlýsing hefur enn verið gefin út af hálfu íranskra stjórnvalda. Þá eru tugir annara hátt settra embættismanna sagðir einnig hafa fallið.

Stýrði Íran í rúm þrjátíu ár

Khamenei fæddist 19. apríl 1939 í Mashhad og var í hópi þeirra sem leiddu íslömsku byltinguna árið 1979 þegar Mohammad Reza Pahlavi var steypt af stóli. Hann varð náinn samstarfsmaður Ruhollah Khomeini og gegndi embætti forseta Írans frá 1981 til 1989.

Eftir andlát Khomeini tók hann við sem æðsti leiðtogi og sat við völd í meira en þrjá áratugi. Á þeim tíma styrkti hann tök embættisins á stjórnmálakerfi og öryggisstofnunum landsins og mótaði harða stefnu gagnvart Bandaríkjunum og Ísrael.

Kerfisbundin kúgun og aftökur

Stjórnartíð hans einkenndist af ítrekuðum aðgerðum gegn andófi. Fjöldamótmæli brutust út árið 2009 eftir umdeildar forsetakosningar þar sem Mahmoud Ahmadinejad var lýstur sigurvegari. Öryggissveitir bældu mótmælin niður.

Árið 2022 hófust víðtæk mótmæli eftir andlát Mahsa Amini sem lést í haldi siðgæðislögreglu. Handtökur og aftökur fylgdu í kjölfarið.

Í janúar 2026 voru umfangsmikil mótmæli bæld niður með hörku. Rannsókn Iran International sýnir að allt að 30 þúsund manns féllu á tveimur dögum 8. og 9. janúar í aðgerðum öryggissveita.

Amnesty International greindi frá því að yfir eitt þúsund manns hefðu verið teknir af lífi í Íran árið 2025 sem er mesti árlegi fjöldi sem samtökin hafa skráð í að minnsta kosti fimmtán ár. Skýrsla Sameinuðu þjóðanna sýnir að að minnsta kosti 975 voru teknir af lífi árið 2024 sem er mesti fjöldi frá 2015.

Byggði upp víðtækt valdakerfi

Undir stjórn Khamenei fjármagnaði Íran og studdi vopnaðar fylkingar á svæðinu þar á meðal Hamas á Gasasvæðinu, Hezbollah í Líbanon, Houthi-hreyfinguna í Jemen og vígasveitir í Írak. Með þeirri stefnu var áhrifasvæði Írans útvíkkað um Miðausturlönd.

Greining sérfræðinga sýnir að embætti æðsta leiðtogans hefur verið mótað sem sjálfstætt valdakerfi sem nær inn í her, efnahagslíf, trúarstofnanir og stjórnsýslu landsins. Það kerfi stendur áfram sem burðarás ríkisvaldsins eftir andlát hans.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila