Allt er gert til að breiða yfir sannleikann

Eftirfarandi færsla birtist á bloggi Kristínar Ingu Þormar á blog.is

Tveir breskir læknar hafa varað við því að allt að 300.000 Bretar geti búist við að fá hjartatengda sjúkdóma vegna „streituröskunar eftir heimsfaraldurinn“.

Sálfræðingur segir að allt að þrjár milljónir Breta þjáist nú þegar af þessari röskun vegna streitu og kvíða vegna „heimsfaraldursins“, og óttast að þetta gæti leitt til stórfelldrar aukningar á líkamlegum heilsufarsvandamálum eins og kransæðabilunar, ef tilfellin greinist ekki eða séu meðhöndluð nógu snemma.

Æðaskurðlæknir segir að hann hafi séð mikla fjölgun tilfella þar sem hann starfar. Ég hef séð mikla aukningu á segamyndunartengdum æðasjúkdómum á stofunni minni. Mun yngri sjúklingar eru lagðir inn og þurfa skurðaðgerðir og læknisaðgerðir en fyrir heimsfaraldurinn“.

Ég trúi því að mörg þessara tilfella séu beinar afleiðingar streituröskunar eftir heimsfaraldurinn, segir hann.

Við höfum líka vísbendingar um að sumir sjúklingar hafi látist heima af völdum sjúkdóma eins og lungnasegareks og hjartadreps. Ég tel að þetta tengist því að margir einangra sjálfa heima frá umheiminum og deyi án þess að fá þá hjálp sem þeir þurftu.

Restina af þessari kostulegu frétt má lesa hérna.

Kuldi er víst líka stórhættulegur!

1205i

Svo eru aðrir „sérfræðingar“ sem vara við því núna að kalt veður geti valdið blóðtöppum og hjartaáföllum.

Þetta uppgötvaðist bara nýlega.

Það er ljómandi gott að fá að vita þetta núna, en ég man ekki eftir að hafa lesið það áður að kuldi út af fyrir sig geti verið talinn sérlega hættulegur heilsu manna.

En alltaf er maður að læra eitthvað nýtt, og það er magnað hvað „vísindunum“ hefur fleygt mikið fram síðastliðin tvö ár eða svo.

Eins og til dæmis með blessaðar grímurnar, „vísindamenn“ uppgötvuðu það nánast á einni nóttu að þær gerðu ægilega mikið gagn gegn veiruskömminni.

Nú, eða hvað það tókst að þróa ný bóluefni á undraskömmum tíma. Lyfjarisarnir hljóta að búa yfir tækni sem við hin höfum bara séð í sjónvarpinu, eins og tímavélum.

Svona er reynt að breiða yfir skaðann af þessum tilraunaefnum

Streituröskun eftir heimsfaraldurinn, nýtt „afbrigði“, og jafnvel kuldi eru sögð útskýra faraldur hjartatengdra veikinda og jafnvel andláta núna.

Aldrei „bóluefnin“, enda vitum við að það eru tómar tilviljanir ef fólk hrekkur upp af, missir sjón eða heyrn, eða lamast eftir sprauturnar.

1129o

Sprauturnar eru ekki að bjarga lífum

1205j

Bresk gögn sýna að sprautað fólk sé að deyja í meira mæli en ósprautað fólk, sem er þvert á hvað allir „Þórólfar og Kárar“ heimsins segja.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila