
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Harald Ólafsson, formann Heimssýnar og prófessor í veðurfræði við Háskóla Íslands og Ernu Bjarnadóttur hagfræðing, í síðdegisútvarpinu, um fullveldi Íslands og framsal valds við mögulega aðild að Evrópusambandinu. Haraldur gagnrýndi hvernig hugtakið fullveldi hefði verið notað í ESB-umræðunni og Erna sagði að með aðild myndi Ísland framselja löggjafarvald í fjölmörgum málaflokkum. Alþingi færi því ekki lengur með sama vald og áður á þeim sviðum sem féllu undir valdheimildir sambandsins. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Fullveldið endurskilgreint
Haraldur sagði fullveldi hafa verið skýrt hugtak í þjóðarétti en gagnrýndi að í umræðunni um ESB væri því í auknum mæli lýst sem einhverju sem ríki gætu deilt með öðrum án þess að það fæli í sér skerðingu fullveldis.
Hann taldi þar verið að breyta merkingu hugtaksins í stað þess að ræða með skýrum hætti hvaða vald færðist frá íslenska ríkinu við aðild. Kjarni málsins væri hver færi með löggjafarvald, framkvæmdarvald og dómsvald eftir inngöngu í sambandið.
Löggjafarvald færðist frá Alþingi
Með aðild yrði löggjafarvald í fjölmörgum málaflokkum ekki lengur alfarið í höndum Alþingis. Erna sagði sáttmála ESB kveða á um á hvaða sviðum sambandið færi með vald og hvar aðildarríkin héldu því áfram.
Löggjöf sem sett væri á vettvangi ESB færi ekki sömu leið og íslensk lög sem Alþingi samþykkti og forseti Íslands staðfesti. Á þeim sviðum þar sem vald hefði færst til sambandsins yrðu ákvarðanir teknar innan stofnanakerfis ESB.
Dómsvaldið einnig hluti af breytingunni
Ágreiningur um löggjöf ESB gæti að lokum komið til kasta Evrópudómstólsins. Þar sætu dómarar frá aðildarríkjunum og niðurstöður dómstólsins hefðu áhrif á túlkun og framkvæmd Evrópuréttar.
Í umræðunni var einnig vísað til Carls Baudenbacher, og gagnrýni sem komið hefði fram á bakgrunn dómara við Evrópudómstólinn. Haraldur og Erna ræddu hvort tengsl dómara við stjórnmál og stjórnsýslu í heimalöndum þeirra gætu haft áhrif á nálgun þeirra.
Hlutverk Alþingis myndi minnka verulega
Pétur spurði hvað Alþingi ætti að gera ef stór hluti mikilvægra ákvarðana væri tekinn á vettvangi Evrópusambandsins. Haraldur taldi ljóst að vald Alþingis myndi minnka verulega og sú þróun gæti haldið áfram eftir aðild þar sem ESB hefði með tímanum tekið sér auknar valdheimildir.
Þá var rætt um hvort hlutverk íslenskra þingmanna myndi að einhverju leyti færast frá lagasetningu yfir í hagsmunagæslu gagnvart stofnunum sambandsins. Pétur spurði hvort þingmenn yrðu í auknum mæli eins konar hagsmunaverðir Íslands gagnvart kerfinu en Haraldur taldi ekki ólíklegt að hlutverkið gæti þróast í þá átt.
Haraldur benti jafnframt á að neitunarvald aðildarríkja hefði minnkað á ýmsum sviðum frá því sem áður var. Að hans mati þyrfti því ekki aðeins að skoða hvernig valdaskipting ESB væri í dag heldur einnig í hvaða átt sambandið væri að þróast.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
