Alþjóðleg ráðstefna haldin um meðhöndlun foreldraútilokunarmála á Norðurlöndum

Alþjóðleg ráðstefna PASG samtakanna (Parental Alienation Study Group) fer fram í Ósló dagana 4-6. september 2024. Á ráðstefnunni ræða alþjóðlegir sérfræðingar foreldraútilokun með áherslu á meðhöndlun þessara mála á Norðurlöndum.

Ráðstefnan verður sett í ráðhúsi Óslóar kl. 19:00 í dag þar sem borgarstjórn Óslóborgar býður gesti velkomna. Ráðstefnan heldur áfram 5-6. september, í Deichman bókasafninu og verður einnig streymt.

Nýlegar lagabreytingar í Danmörku og barnaverndaraðgerðir þar í landi verða í brennidepli, en Danmörk er í fararbroddi Norðurlandanna að takast á við foreldraútilokun með lagasetningu.

Helstu norrænu fyrirlesarar:

  • Davíð Þór Björgvinsson (Ísland): Fyrrverandi dómari við Mannréttindadómstól Evrópu, ræðir hvernig dómar MDE í foreldraútilokunarmálum hafi fordæmi fyrir dómstóla í Evrópu
  • Jesper Lohse (Danmörk): Formaður Foreningen Far, lýsir lagaumbótum í Danmörku og sértækum afleiðingum í málum fyrir fjölskyldurétti þar sem foreldraútilokun á sér stað.  
  • Camilla Bernt (Noregur): Lagaprófessor fer yfir lagalegar áskoranir í foreldraútilokunarmálum.
  • Pehr Granqvist (Svíþjóð): Sálfræðiprófessor við háskólann í Stokkhólmi, fjallar um hlutverk tengslafræðinnar í forsjármálum og hvernig rangtúlkun á henni hefur áhrif á dóma í foreldraútilokunarmálum.

Alþjóðlegir sérfræðingar frá 20 löndum, þar á meðal William Bernet og Ashish Joshi (BNA), Edward Kruk (Kanada), Ben Hine, (Bretlandi), Brian O’Sullivan (Írlandi) og Marie-France Hirigoyen (Frakklandi), deila innsýn sinni á lagalegum, sálfræðilegum og félagslegum aðferðum til að takast á við foreldraútilokun.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila