Alvarlegt líkamstjón eftir bóluefnasprautur

Samkvæmt þeim verklagsreglum sem farið er eftir þegar efni og lyf sem notuð eru eins og kovid bóluefnin má slá því föstu að allir líkamsskaðar sem fólk hefur orðið fyrir eftir að hafa fengið bólusetningu séu af völdum bóluefnisins þangað til að hægt verður að sýna fram á annað. Þetta segir Guðmundur Karl Snæbjörnsson læknir en hann var gestur í þætti Arnþrúðar Karlsdóttur.

Guðmundur segir að því sé ekki líklegt að allir þeir sem sagðir voru hafa látist af kóvid á fyrsta ári faraldursins hafi í raun látist af kóvid. Í því sambandi bendir Guðmundur á að PCR prófin séu ómarktæk. Þá hafi ekki tekist að sýna fram á að veiran sem sögð er valda Covid geti smitast milli manna ekki frekar en aðrar veirur. Hins vegar sé það svo að veirur séu í raun eitur sem sé alls ekki gott að fá í sig.

Hefur ekki enn verið kallaður fyrir Velferðarnefnd Alþingis

Í þættinu var Guðmundur, sem sent hefur þinginu umsögn um nýtt sóttvarnarfrumvarp, spurður að því hvort Velferðarnefnd þingsins hafi kallað hann fyrir eins og nefndinni beri að gera gagnvart þeim sem sendi inn umsagnir. Segir Guðmundur að það sé nokkuð góð spurning og hann hafi hringt í ritara nefndarinnar sem hafi sagt málið í athugun eins og það hafi verið orðað. Guðmundur segist auðvitað vona að vera kallaður fyrir nefndina en tíminn verði bara að leiða það í ljós.

Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila