
Bréf frá lögmönnum sem birt var meðal nýrra gagna í Epstein-skjölunum lýsir því að Andrew Mountbatten-Windsor og Jeffrey Epstein hafi greitt nektardansmey til þess að dansa fyrir þá á heimili Epsteins í Flórída. Þar kemur fram að konunni hafi verið boðin greiðsla fyrir dans en síðar hafi þeir Andrew og Epstein óskað eftir því við konuna að hún kæmi með þeim í trekant. Fjallað er um málið á vef BBC sem lesa má með því að smella hér.
Boðin greiðsla og beiðni um trekant
Fram kemur að konan hafi hafnað óskum Andrews og Epsteins og sagt þeim að hún hefði verið ráðin til þess að dansa nektardans en ekki til þess að stunda með þeim kynlíf.
Lögmennirnir segja að vegna höfnunarinnar hafi konan aðeins fengið greidda 2 þúsund dollara af umsamdri upphæð sem hafi átt að vera 10.000 dollarar. Einnig kemur fram að henni hafi verið boðin ferð til Jómfrúareyja með mönnunum en hún hafnað því.
Segir ungar konur hafa verið á staðnum
Í bréfinu er jafnframt sagt að konan hafi séð aðrar ungar konur á samkomunni klæddar í ögrandi klæðnað og sumar þeirra virst mjög ungar. Hún hafi verið flutt ásamt öðrum dönsurum frá nektardansstað í West Palm Beach að heimili Epsteins þar sem hún var kynnt fyrir Andrew Mountbatten-Windsor. Í nýjustu gögnum bandaríska dómsmálaráðuneytisins birtust ljósmyndir sem sagðar eru sýna Andrew á fjórum fótum yfir konu sem liggur á gólfi, bæði fullklædd.
