
Appelsínugul veðurviðvörun tekur gildi á morgun samhliða áframhaldandi óvissu vegna jarðhræringa við Grindavík. Búast má við verulegum samgöngutruflunum og hættu á að flóttaleiðir lokist með skömmum fyrirvara.
Hríðarveður og erfiðar aðstæður á vegum
Veðurstofan hefur gefið út gula og síðar appelsínugula viðvörun fyrir allt landið, þar á meðal Reykjanesið, sem tekur gildi frá kl. 10 til 22 á morgun. Gert er ráð fyrir hríðarveðri í upphafi með slæmu skyggni og snjókomu sem getur valdið ófærð.
Síðar tekur við slydda og töluverð rigning og verður veður áfram óhagstætt fram á kvöld. Samgöngutruflanir eru líklegar, einkum á tímabilinu frá kl. 12 til 19.
Vegfarendur eru hvattir til að fylgjast náið með veður- og færðarupplýsingum og gefa sér góðan tíma í ferðir. Sérstaklega er bent á að vanbúnir bílar eigi ekki að leggja af stað og að ökutæki séu útbúin fyrir vetraraðstæður.
Óvissa vegna jarðhræringa við Grindavík
Áfram gætir óvissu vegna jarðhræringa og landriss við Grindavík og Svartsengi með mögulegri eldgosshættu. Viðbragðsaðilar hafa aukið viðbúnað á svæðinu og verða björgunarsveitir og slökkvilið með aukna vakt.
Almenningi, ferðamönnum og íbúum er ráðlagt að kynna sér aðstæður vel og hafa í huga að flóttaleiðir frá bænum geta lokast með skömmum fyrirvara. Það getur því verið varasamt að vera á ferðinni á meðan veður gengur yfir.
Fólk hvatt til að fylgjast með tilkynningum
Fólk er hvatt til að fylgjast með upplýsingum frá Veðurstofu Íslands, Vegagerðinni og lögreglu og taka mið af þeim áður en lagt er af stað.
Smelltu hér til þess að skoða vef Veðurstofu Íslands.
Smelltu hér til þess að skoða vef Vegagerðarinnar.
