
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Arnar Þór Jónsson, fyrrverandi héraðsdómara og formann Lýðræðisflokksins, í Síðdegisútvarpinu um bókun 35 við EES-samninginn. Í þættinum kom fram að ný ríkisstjórn hafi lagt málið fram að nýju og að það sýni að stefna stjórnvalda í þessum efnum breytist ekki þó nýir flokkar komi til valda. Að sögn Arnars Þórs þýðir þetta að það virðist í raun ekki skipta máli hvað fólk kýs – niðurstaðan verði alltaf sú sama: framsal á valdi til Evrópusambandsins. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Gengur gegn stjórnarskránni
Í þættinum var rifjað upp að bókun 35 hafi verið mjög umdeild þegar EES-samningurinn var samþykktur fyrir um 30 árum. Þá hafi verið bent á að hún stæðist ekki stjórnarskrá þar sem hún felur í sér að Evrópureglur gangi framar íslenskri löggjöf. Ágreiningur hafi verið leystur með sérstakri löggjöf á Íslandi með lögum um Evrópska Efnahagssvæðið þar sem forgangsreglan komi fram og hafi verið stuðst við það ákvæði í íslenskum rétti síðan með góðum árangri. Í aðdraganda samningsins um EES hafi um 30 þúsund Íslendingar skrifað undir mótmæli til þáverandi forseta Vigdísar Finnbogadóttur sem hafi á endanum lagt blessun sína við EES samninginn með undirskrift sinni.
Valdaframsal til erlendra stofnana
Í þættinum sagði Arnar Þór að bókun 35 væri aðeins eitt dæmi af mörgum um þá þróun að íslensk stjórnvöld færi sífellt meira vald og fjármagn úr landi. Embættismenn og ráðherrar hafi ítrekað innleitt reglur og stefnu sem komi utan frá í stað þess að standa vörð um stjórnarskrána og hagsmuni þjóðarinnar.
Kallar eftir endurskoðun EES-samningsins
Arnar Þór sagði að EES-samningurinn hafi upphaflega verið kynntur sem viðskiptasamningur. Nú sé hann orðinn að pólitísku og lagalegu sambandi sem gangi mun lengra en upphaflega var samið um og ætlast til. Hann taldi tímabært að Íslendingar endurskoðuðu stöðu sína og jafnvel segðu sig frá samningnum til að tryggja sjálfstæði og lýðræði landsins.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan
