Könnun: Fáir sáttir við valið á nýjum dómsmálaráðherra

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir varð fyrir valinu sem nýr dómsmálaráðerra

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu er ekki sáttur við valið á nýjum dómsmálaráðherra.

Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni um helgina. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: 

Ert þú sátt/ur við valið á nýjum dómsmálaráðherra?

Niðurstaðan var eftirfarandi: 


Nei 80%

Já 15,7%

Hlutlaus 4,3%


Atkvæði 553

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila