Áslaug Arna ræddi gervigreind á ráðherrafundi OECD

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar, og nýsköpunarráðherra, sótti á dögunum ráðherrafund OECD um vísindi og tækni, þann fyrsta sem haldinn er síðan árið 2015. Fundurinn fór fram í París og var yfirskriftin Sameiginlegar áskoranir, umbreytandi aðgerðir.

Þar var áhersla m.a. lögð á á þær áskoranir og tækifæri sem OECD-ríkin standa frammi fyrir þegar kemur að tækniframförum, ekki síst gervigreind. Þá ræddu ráðherrarnir hvernig best megi nýta vísindi og tækni til að mæta samfélagslegum áskorunum landanna. 

Í ræðum sínum á fundinum ræddi Áslaug Arna nýlegar breytingar á stefnumörkun vísinda- og tæknimála á Íslandi, sem og hvernig stjórnvöld hafa notið góðs af nýlegri úttekt OECD á framlögum íslenska ríkisins til rannsókna og þróunar. Stuðst verður við skýrsluna við áframhaldandi stefnumörkun í málaflokknum. Þá nefndi Áslaug að nauðsynlegt sé að tryggja að gagnaöflun með gervigreind ýti ekki undir eða ýki það ójafnræði sem þegar er til staðar í vísindastarfi, gögnum og miðlun vísinda. 

Auk ráðherra taldi sendinefnd Íslands á fundinum m.a. fulltrúa Íslands í stjórn stefnumarkandi nefndar OECD um vísindi og tækni (CSTP) og fastafulltrúa Íslands gagnvart OECD. 

Í tengslum við ráðherrafundinn hafa tvær stefnumarkandi skýrslur á vegum OECD verið gefnar út: 

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila