Atkvæðagreiðsla hefst á morgun um verkfall hjá Íslandshótelum

Samninganefnd Eflingar – stéttarfélags samþykkti í gær á fundi sínum verkfallsboðun sem tekur til starfsstöðva Íslandshótela á félagssvæði Eflingar.

Í tilkynningu segir að samninganefnd Eflingar hai fundað með fjölmennum hópi starfsfólks Íslandshótela í gærkvöldi, áður en að verkfallsboðunin var samþykkt. Meðlimir samninganefndar Eflingar hafi jafnframt heimsótt allar starfsstöðvar Íslandshótela og rætt við félagsfólk.

Í síðasta tilboði til SA krafðist samninganefnd Eflingar þess að hótelstörf yrðu hækkuð um launaflokk. Töfluhækkun tilboðs Eflingar myndi skila almennum hótelstarfsmanni með eins árs starfsaldur rúmlega 55 þúsund króna hækkun grunnlauna, til viðbótar við framfærsluuppbót að upphæð 15 þúsund á mánuði vegna hás framfærslukostnaðar á höfuðborgarsvæðinu.

Boðunin fer nú í atkvæðagreiðslu meðal þess félagsfólks sem aðgerðirnar taka til. Er þar um að ræða félagsfólk sem sinnir þrifum á herbergjum og í sameiginlegum rýmum, störfum í eldhúsi, við framreiðslu veitinga, þvott og fleira.

„Hótelstarfsfólk er með lægst launaða fólki á íslenskum vinnumarkaði, að yfirgnæfandi meirihluta konur af erlendum uppruna. Þessi sami hópur samþykkti sögulegar verkfallsaðgerðir vorið 2019 sem áttu mikinn þátt í að ljúka góðum kjarasamningum þá. Eftir þessu man félagsfólk. Hjá þeim skynja ég sama hugrekki, sömu reisn og sömu staðfestu og árið 2019,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila