Aukin áhersla lögð á verndun og sjálfbæra nýtingu hafsvæða í íslenskri lögsögu

Úthafsáttmáli Sameinuðu þjóðanna um verndun og sjálfbæra nýtingu alþjóðlegra hafsvæða sem samþykktur var í New York síðastliðinn laugardag markar tímamót og samræmist þeim markmiðum sem íslensk stjórnvöld hafa sett sér um verndun viðkvæmra hafsvæða og botnvistkerfa í landhelgi Íslands. Þetta segir í tilkynningu frá Matvælaráðuneytinu en fulltrúi ráðuneytisins tók þátt í undirbúningi og gerð sáttmálans fyrir hönd Íslands.

Sen fyrr segir var sáttmálinn samþykktur í New York sl. laugardag eftir tíu ára samningaferli. Hann setur takmörk á umfang veiða, siglingaleiðir og námugröft á hafsbotni. Verndun líffræðilegrar fjölbreytni er ein af megináherslum sáttmálans en um 10% allra tegunda sem búa í hafinu eru taldar í útrýmingarhættu.

Í sáttmálanum eru sett fram markmið um verndun 30% alþjóðlegra hafsvæða. Til sama viðmiðs hefur verið horft við mótun framtíðarstefnu Íslands um verndun hafsins, þ.e. að sama hlutfall íslenskra hafsvæða verði innan verndarsvæða eða njóti annarrar svæðisbundinnar verndar og kveðið er á um í alþjóðlegum samningum sem Ísland er aðili að.
Eitt fyrsta skrefið í átt til þeirra markmiða er reglugerð um verndun viðkvæmra hafsvæða og botnvistkerfa við Ísland sem matvælaráðherra staðfesti nýlega en ljóst er að endurskoðun á verndun og nýtingu hafsins er þörf, ásamt staðbundnum og skilvirkum verndaraðgerðum til að Ísland nái markmiðum um verndun hafsvæða.

Ákvæði sáttmálans munu aðeins gilda þar sem valdheimildum annarra alþjóðastofnana sleppir. Þau munu til dæmis ekki gilda um fiskveiðistjórnun á Norðaustur-Atlantshafi, þar sem til staðar er svæðisbundin fiskveiðistjórnunarstofnun sem stýrir úthafsveiðum.
Í sáttmálanum er lögð áhersla á skýr verndarmarkmið og að skilgreind verði sú eftirfylgni sem þarf til að verndun verði árangursrík. Tryggja þarf að verndun hafsvæða eigi sér stoð á grundvelli laga, sé unnin á vísindalegum grunni og gerð í samráði við haghafa.

„Meginmarkmið verndunar hafsvæða í íslenskri landhelgi er að tryggja líffræðilega fjölbreytni ásamt sjálfbærri nýtingu auðlinda og samþykkt Úthafssamningsins er mikilvægt skref í þeirri vegferð”, sagði Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra. „Auðlindir sjávar eru okkur Íslendingum ekki einungis efnahagslega mikilvægar, okkar ábyrgð er líka að skila komandi kynslóðum sjálfbærum og heilbrigðum hafsvæðum“.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila