Bæta aðgengi að naloxón neyðarlyfinu í ópíóðafaraldrinnum

Aðgengi að Lyfi á nefúðaformi sem inniheldur naloxón sem reynst hefur lífsbjargandi sem fyrstu viðbrögð við ofskömmtun ópíóíða hefur verið bætt til muna meðal annars með breyttu fyrirkomulagi við afhendingu lyfsins. Lyfið er afhent einstaklingum að kostnaðarlausu. Dæmi um lyf/efni sem innihalda ópíóíða eru heróín, metadon, fentanýl, oxýkódon, búprenorfín og morfín.

Naloxón er lyfseðilsskylt og var verklagið lengst af þannig að því var ávísað af lækni beint til sjúklings. Á liðnu ári var verklagi breytt með þeim hætti að læknar geta ávísað lyfinu til fyrirtækja eða stofnana sem þjónusta fólk sem glímir við ópíóíðafíkn og/eða aðstandenda þeirra.

Mikilvægt að bæta aðgengi enn frekar

Vísbendingar eru um að ofnotkun ópíóíða sé vaxandi vandamál hér á landi. Hefur ríkisstjórnin því samþykkt tillögur Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra um aðgerðir til að sporna við þessari óæskilegu þróun. Meðal aðgerðanna var aukin fjárveiting til þess að auka enn frekar dreifingu nefúðans.

Víða erlendis hefur dregið úr dauðsföllum vegna ofneyslu ópíóíða eftir að stjórnvöld juku aðgengi að Naloxón. Með þeim breytingum sem hér hefur verið lýst er því fylgt fordæmum sem gefið hafa góða raun. Heilbrigðisráðuneytið hvetur viðbragðsaðila og aðra þá sem á einhvern hátt koma að þjónustu við einstaklinga með ópíóíðafíkn til að koma sér upp neyðarskömmtum svo unnt sé að veita neyðarmeðferð með lyfinu ef þörf krefur. Mikilvægt er þó að koma viðkomandi undir læknishendur eftir notkun þess til frekari meðferðar.

Lyfinu fylgir fræðsluefni sem mikilvægt er fyrir viðbragðsaðila að kynna sér. Rauði krossin á Íslandi hefur einnig gefið út fræðslumyndband um skyndihjálp í kjölfar ofskömmtunar og notkun naloxón í nefúðaformi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila