Site icon Útvarp Saga

Bergþór: Varar við áhrifum bókunar 35

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Bergþór Ólason þingmann Miðflokksins í Síðdegisútvarpinu meðal annars um fullveldi Íslands, bókun 35 við EES-samninginn og utanríkis- og varnarmál. Bergþór gagnrýndi að ríkisstjórnin legði of mikla áherslu á samvinnu við Evrópusambandið á kostnað hagsmuna Íslands. Bergþór vill að stjórnvöld styrki frekar tengsl við Bandaríkin og NATO. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Telur bókun 35 grafa undan íslenskum lögum

Bergþór segir að fyrirhuguð innleiðing bókunar 35 með forgangsreglu ESB-réttar feli í sér að reglur frá Brussel gangi framar íslenskum lögum. Hann telur slíkt brjóta gegn stjórnarskrárbundnu fullveldi Íslands og skapa hættu á langvinnum ágreiningi í dómskerfinu. Hann segir Miðflokkinn vilja helst að málið verði alfarið tekið af dagskrá.

Vill efla tvíhliða samskipti við Bandaríkin og NATO

Bergþór leggur áherslu á að varnarsamningurinn við Bandaríkin og þátttaka Íslands í NATO séu hornsteinar íslenskrar öryggisstefnu og að mikilvægt sé að rækta þau tengsl. Að hans mati þurfi Ísland að verja stöðu sína sem öruggur og traustur samstarfsaðili í norður-Atlantshafssvæðinu.

Of mikil áhersla á Evrópu í utanríkismálum

Bergþór gagnrýnir að utanríkisstefna Íslands hafi á undanförnum misserum færst nær stefnu Evrópusambandsins meðal annars í loftslags- og viðskiptamálum. Hann telur að hagsmunir Íslands eigi að vera í forgangi og varar við að ákvörðunarvaldið færist sífellt meira til Brussel.

Vill leysa tollamálin við Bandaríkin með samningum

Rætt var um nýja 15% tolla Bandaríkjanna á íslenskar vörur. Bergþór telur brýnt að stjórnvöld vinni markvisst að því að ná samningum við bandarísk stjórnvöld til að tryggja hagsmuni íslenskra framleiðenda og viðskiptalífs.

Hlusta má á ítarlega umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla
Exit mobile version