Bjarni: Borgarlínu verkefnið löngu farið úr böndunum

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Bjarna Guðjónsson sem skipar 2. sæti lista Sjálfstæðisflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum í þættinum Síðdegisútvarpinu um almenningssamgöngur og Borgarlínuna. Þar kom fram að hann telur verkefnið í núverandi mynd hvorki raunhæft né réttlætanlegt miðað við kostnað og áhrif á umfer. Einkabíllinn verður áfram mikilvægastur. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Segir kostnað og umfang farið úr böndunum

Bjarni sagði að kostnaður við Borgarlínuna hafi vaxið verulega og að ekki liggi fyrir skýr ávinningur sem réttlæti umfang framkvæmdanna. Hann sagði að verið sé að tala um tugi eða hundruð milljarða króna án þess að sýnt hafi verið fram á að verkefnið leysi þann vanda sem því er ætlað að takast á við. Bjarni sagði að framkvæmdir tengdar Borgarlínunni hafi þegar haft áhrif á umferð, með því að þrengja akreinar og fækka bílastæðum, sem bitni á bæði einstaklingum og fyrirtækjum.

Vill bæta almenningssamgöngur án stórframkvæmda

Bjarni sagði að allir vilji betri almenningssamgöngur en að það þýði ekki að Borgarlínan sé rétta leiðin. Hann benti á að hægt sé að bæta kerfið með einfaldari og markvissari aðgerðum, meðal annars með því að nýta minni vagna, auka tíðni ferða og bæta leiðakerfi. Í máli Bjarna kom fram að einnig megi nýta tæknilausnir til að bæta flæði svo sem með betri stýringu umferðarljósa og forgangi almenningssamgangna á ákveðnum köflum, án þess að ráðast í kostnaðarsamar framkvæmdir.

Áhyggjur af öryggi í strætisvögnum

Í þættinum var rætt um þær áhyggjur sem hefðu komið fram um öryggi í strætisvögnum. Dæmi eru um börn og ungmenni verði fyrir árásum eða ógnandi hegðun um borð í stætisvögnum og þori ekki að ferðast á ákveðnum leiðum. Þetta hafi áhrif á vilja fólks til að nýta sér almenningssamgöngur. Hann sagði að þessi þróun sé ekki rædd nægilega opinberlega þrátt fyrir að hún hafi áhrif á nýtingu kerfisins. Að hans mati þurfi að bregðast við þessu með markvissum aðgerðum til að tryggja öryggi farþega og starfsfólks.

Vill jafnvægi milli ferðamáta – einakbíllinn verður áfram

Bjarni sagði að ekki sé rétt að þrengja að einkabílnum til að knýja fram breytingar á ferðavenjum. Hann lagði áherslu á að borgin eigi að skapa umhverfi þar sem íbúar geti valið þann ferðamáta sem hentar hverju sinni. Bjarni taldi að bæta þurfi almenningssamgöngur án þess að skerða aðgengi þeirra sem treysta á einkabíl, þar á meðal fjölskyldna sem þurfa að sinna daglegum ferðum milli skóla, vinnu og tómstunda.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila