
Björg Magnúsdóttir verður oddviti Viðreisnar í Reykjavík í komandi sveitarstjórnarkosningum eftir úrslit oddvitakjörs sem kynnt voru á kosningavöku flokksins á Petersen. Hún hlaut 1.011 atkvæði eða um 48 prósent og hafði þar með sigur gegn þremur mótframbjóðendum.
Aðalsteinn Leifsson varð í öðru sæti með 587 atkvæði eða um 28 prósent. Róbert Ragnarsson hlaut 479 atkvæði og Signý Sigurðardóttir 28. Fjögur atkvæði voru auð eða ógild.
Boðar kerfisbreytingar
Í viðtali í Síðdegisútvarpinu við Arnþrúði Karlsdóttur í liðinni viku sagði Björg tímabært að ráðast í víðtæka uppstokkun á borgarkerfinu þar sem þjónusta yrði endurhugsuð frá grunni með þarfir íbúa að leiðarljósi. Hún lagði þar áherslu á að einfalda þyrfti ferla skýra ábyrgð og færa fókusinn frá innri kerfum yfir í notendur þjónustunnar.
Leikskólamál brýn
Í sama viðtali sagði Björg leikskólamál vera meðal stærstu úrlausnarefna borgarinnar og kallaði eftir róttækri endurskoðun á skipulagi þeirra. Hún lagði áherslu á að ákvarðanir um breytingar yrðu að taka mið af foreldrum börnum starfsfólki og atvinnulífi og að meira samtal þyrfti að eiga sér stað áður en stór skref væru tekin.
