Í TikTok myndbút sem birtur var í mars situr indónesíski áhrifavaldurinn Lina Luftiawati, þekkt undir listanafninu Lina Mukherjee, fyrir framan disk með hrísgrjónum, grænmeti og sneið af stökku svínaskinni sem hún borðaði. Í samræmi við lög um guðlast múslima í landinu á hún nú á hættu að sitja í nokkur ár í fangelsi. Áður en hún borðar bitann segir hún flissandi fyrir framan myndavélina:
„Bismillah, ég held að ég verði fjarlægð úr fjölskylduskránni, vegna þess að ég er forvitin um svínakjötshúð.“
Eftir 13 milljón áhorf á einni viku og fjölda reiðilegra ummæla gaf helsta múslímska klerkastofnun landsins út fatwa gegn Mukherjee, úrskurð um dóm samkvæmt íslömskum lögum. Indónesíska Ulema-ráðið segir, að það telji myndbandið guðlast. Nokkrum dögum síðar kærði æðstiprestur myndbútinn til lögreglunnar. Í byrjun maí var Mukherjee opinberlega ákærð fyrir guðlast og á yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsi samkvæmt lögum um guðlast og hatursorðræðu í Indónesíu.
Lög um guðlast í Indónesíu hafa verið gagnrýnd af mannréttindasamtökum sem hafa áhyggjur af því að sífellt íhaldssamari íslamistahópar landsins noti lögin til að ráðast á minnihlutahópa. Að sögn Gatria Priyandita, netskilgreinenda hjá Australian Strategic Policy Institute, er „almennt rugl“ í gangi um lögin og „rauðu línan“ óskýr í málum eins og guðlasti, kynþáttafordómum og ærumeiðingum.
Biðst afsökunar
Mukherjee hefur beðist afsökunar á myndbandinu og lofað að huga betur að efni á samfélagsmiðlum í framtíðinni. Hún sagði við svæðismiðla í byrjun maí
„Ég bið íbúa Indónesíu afsökunar, ég gerði mistök sem opinber persóna. Í framtíðinni mun ég nota samfélagsmiðla mína betur fyrir meira af gagnlegu efni.“
Þrátt fyrir að trúarflokkar beiti sér fyrir því að hún verði handtekin, þá´ er hún áfram heima á meðan lögreglan rannsakar málið.