
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Ara Edwald, oddvita Miðflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum í síðdegisútvarpinu um borgarlínu, umferðarframkvæmdir og samgöngur í Reykjavík. Þar kom fram að Ari gagnrýnir harðlega áform um borgarlínu og þá stefnu að þrengja að bílaumferð sem hann telur ekki samræmast vilja borgarbúa né raunverulegum þörfum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Takmarkaður stuðningur og breytt umræða
Ari sagði að afstaða almennings til borgarlínu hefði breyst og aukinn skilningur væri á því að núverandi stefna borgaryfirvalda samræmdist illa þörfum fólks. Hann vísaði til kannana, meðal annars frá HMS, þar sem fram kæmi að aðeins lítið hlutfall borgarbúa teldi að fyrirhugaðar breytingar á almenningssamgöngum myndu hafa áhrif á ferðavenjur þeirra.
Hagkvæmari úrræði en Borgarlínan lögð til
Í viðtalinu vísaði Ari til ráðstefnunnar „Greiðum leið“ þar sem sérfræðingar kynntu aðrar lausnir. Þar nefndi hann samgönguverkfræðinginn Þórarinn Hjaltason sem hafi lagt fram tillögur um að bæta strætókerfið með mun lægri kostnaði en borgarlínu verkefnið. Einnig hafi verið fjallað um snjallstýringu umferðarljósa með gervigreind, fjölgun forgangsakreina fyrir strætó og umbætur á gatnamótum sem gætu aukið afkastagetu gatna án stórframkvæmda.
Uppruni hugmynda um þrengingar
Ari vísaði einnig til umfjöllunar hagfræðingsins Ólafs Matthíassonar, sem hafi bent á að hugmyndir um að fækka akreinum og þrengja að bílaumferð á Suðurlandsbraut væru eldri en borgarlínan sjálf. Að mati Ara sýni þetta að samgöngustefnan byggi að hluta á fyrirfram gefinni hugmyndafræði um að draga úr notkun einkabílsins.
Áhrif á atvinnulíf og framkvæmdatíma
Í umræðunni kom fram að framkvæmdir á lykilsvæðum, sérstaklega á Suðurlandsbraut, gætu haft veruleg áhrif á fyrirtæki. Ari nefndi að þar starfi þúsundir manna og lokanir í allt að 5 ár gætu raskað rekstri og valdið því að fyrirtæki flytji starfsemi sína annað.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
