Borgarstjórnin fagnar fjölmenningunni

Borgarstjórn samþykkti í gær yfirlýsingu þar sem fjölmenningunni er fagnað en í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að yfirlýsingin sé í samræmi við þátttöku borgarinnar í verkefninu „Intercultural Cities.Sabine Leskopf borgarfulltrúi og formaður fjölmenningarráðs segir lykilhugmyndina að þessari nálgun sé að horfa á ávinning fjölbreytileikans

“ og að við horfum á innflytjendur sem drifkraft fyrir samfélagið og auðlind á bak við hagkerfi, félagslíf og menningu í borginni, við viljum gera Reykjavík að fjölmenningarborg þar sem allir njóta sín til fulls„,segir Sabine.


Yfirlýsingin er eftirfarandi:


Reykjavík er fjölmenningarborg

Við fögnum fjölbreytileika, jafnrétti, samskiptum og þátttöku allra.
Við erum stolt af því að vera borg þar sem margir menningarheimar mætast.

Við erum stolt af því hve langt við höfum náð í því að setja upp kynjagleraugun eða hinsegin gleraugun. Nú nýtum við okkur þessa reynslu og setjum upp fjölmenningargleraugun á sama hátt.


Við hvetjum önnur sveitarfélög og ríkið að taka þátt í þessari vegferð.
Við viljum að innflytjendur geti verið virkir þátttakendur í samfélaginu með aðgang að öllu sem borgin hefur fram að færa og að þeir þekki réttindi sín.


Við tryggjum að fjölmenningarleg gildi endurspeglist í allri stefnumótun sem og þjónustu borgarinnar.


Við erum þakklát fyrir framlag innflytjenda í borgarlífinu.


Við viljum gera þessu jákvæða framlagi innflytjenda hærra undir höfði.


Við gerum okkur grein fyrir að fjölbreytileiki er undirstaða jákvæðrar þróunar.

Þegar hver og einn fær tækifæri að njóta hæfileika sinna og sköpunarkrafta til fulls, þá græðum við öll á því.

Stuðningsnetið Fjölmenningarborgir

Reykjavíkurborg hefur verið aðili að stuðningsnetinu Intercultural Cities eða Fjölmenningarborgir síðan á árinu 2014. Markmiðið er að styðja borgir í að þróa aðferðir til að takast á við fjölbreytni í fjölmenningarsamfélagi og stuðla að aukinni þátttöku innflytjenda og minnihlutahópa.


Aðalmarkmið verkefnisins er skuldbinding til að fagna fjölbreytileika og sýnilegur vilji til að gera betur í málefnum innflytjenda.



Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila