
Börn hér á landi eru mötuð á röngum upplýsingum um að forsetaembættið á Íslandi sé algerlega valdalaust. Þetta var meðal þess sem fram kom í þættinum Menntaspjallinu í dag en þar voru gestir Valgerðar Jónsdóttur, þeir Logi Kjartansson lögmaður og Leifur Árnason flugstjóri.
Logi segir að hann hafi orðið var við þetta þegar hann sjálfur hafi verið í skóla en svo þegar hann hafi farið að læra lögfræði hafi hann komist að raun um að það sem sagt hafi verið um embætti forsetans væri beinlínis rangt.
Forsetinn gegnir veigamiklu hlutverki í samfélaginu
Logi segir að ekki hafi verið mikið fjallað um lög í skólum almennt en þó eitthvað aðeins um Alþingi og forsetann og alltaf hafi verið hamrað mjög á því að forsetinn væri valdalaus. Hann segir að lengi hafi verið gert út á þetta í grunn og framhaldsskólum og forsetaembættið málað upp sem eitthvert skrautembætti þegar það gegnir mjög veigamiklu hlutverki í samfélaginu.
Forsetinn stjórnar ríkisráðsfundum og annar handhafi löggjafarvaldsins
Ekki megi gleyma því að forsetinn sé lykilmaður í ríkisráði og er því í rauninni formlega æðsti handhafi framkvæmdavaldsins og síðast en ekki síst annar handhafi löggjafarvaldsins.Hlutverk forseta sé þannig hvorki lítið né það vald sem hann hafi eins og kennt sé í skólum.
Hlusta má á nánari umfjöllun í spilaranum hér að neðan
