Börnin notuð á sérkennilegan hátt á opnunarhátíð Ólympíuleikanna

Opnunarhátíð Ólympíuleikanna hefur vakið mikil viðbrögð meðal fólks gjarnan í formi hneykslunar enda var augljós kynferðisleg skírskotun í opnunaratriðinu. Það sem verra er að þar voru meðal annars fötluð börn höfð með í atriðinu sem áttu að vísa til fjölbreytileikans. Þetta var meðal þess sem fram kom í Menntaspjallinu í dag en gestir Valgerðar Jónsdóttur voru þeir Logi Kjartansson lögfræðingur og Leifur Árnason flugstjóri.

Valgerður segir að hún hafi séð þetta atriði sem nokkurs konar misnotkun á þeim börnum sem þar komu fram því börn gætu eðli málsins samkvæmt ekki borið hönd fyrir höfuð sér.

Fötluð börn geta síður veitt upplýst samþykki

Logi sagði að eins og þetta atriði hafi birtst honum að það hafi verið mjög vafasamt að börn og sér í lagi fötluð börn hafi verið sett í atriðið því gera megi fastlega ráð fyrir að börn sem haldin séu fötlun séu ekki til þess fær að veita upplýst samþykki sitt fyrir þátttöku í slíku.

Fólk verður að skilja í hverju það tekur þátt

Þá bendir Logi á það að þetta fólk hafi ekki málað sig sjálft og ljóst sé að það sé einhver sem geri þetta við börnin að skreyta þau. Það sé lágmark að fólk sem sé fengið í slík atriði geti gert sér grein fyrir því í hverju það er að taka þátt. Hann bendir á að fólk sem eigi við mikla fötlun að skríða myndi líklega faðma krókódíl yrði það beðið um slíkt og því ófært að leyfa sér að ætla að börnin hafi tekið þátt í þessu sjálfviljug.

Hlusta má á nánari umfjöllun í spilaranum hér að neðan

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila