Lulu dæmdur glæpamaður en látinn laus vegna formgalla
Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, flutti stuttar ræðu á þriðjudag, þar sem hann fjallaði um vaxandi mótmæli gegn kjöri fyrrverandi forseta og dæmda glæpamannsins Luiz Inácio Lula da Silva í forsetaembættið. Sósíalistinn Lula sat tvö kjörtímabil sem forseti frá 2003 til 2011 og var dæmdur árið 2017 fyrir að hafa tekið við mútum meðan hann var í æðsta embætti þjóðarinnar. Lula vann forsetakosningarnar 2022 á sunnudaginn með einum minnsta mun í sögunni. Lula fékk að bjóða sig fram til forseta þrátt fyrir að vera dæmdur glæpamaður vegna þess að æðsti dómstóll þjóðarinnar, Hæstiréttur sambandsdómstólsins (STF), ógilti sakfellinguna af málsmeðferðarástæðum. STF lagði aldrei fram nein sönnunargögn sem ganga gegn þeim staðreyndum málsins, sem leiddu til yfir tveggja áratuga fangelsisdóms.
Aðstæður í kringum veru Lula á kjörseðlinum og hin naumu kosningaúrslit – 51,9 % fyrir Lula, 49,1 % fyrir Bolsonaro – hafa hrundið af stað mótmælabylgju um allt land og hafa stuðningsmenn Bolsonaro meðal flutningabílstjóra lokað vegum og umferð landsins. Lögreglan hefur staðfest vegatálma í 24 af 26 ríkjum þjóðarinnar undanfarna tvo daga.
Rauf þögnina með stuttri ræðu og hvatti til friðsamlegra mótmæla
Margir mótmælendanna tóku tveggja daga þögn Bolsonaro sem vísbendingu um að þeir ættu að láta rödd sína heyrast. „Við bíðum eftir skipunum þínum, skipstjóri!“ hrópaði einn hópur flutningabílstjóra á mánudagskvöldið. Á þriðjudag hélt Bolsonaro stutt ávarp og sagði að hann gengi ekki gegn stjórnarskrá þjóðarinnar áður en hann fór aftur inn í Palácio da Alvorada, forsetabústaðinn:
„Ég vil byrja á því að þakka þeim 58 milljónum Brasilíumanna sem kusu mig. Núverandi fjöldahreyfing er ávöxtur reiði og ranglætistilfinningar um hvernig kosningaferlið fór fram. Friðsamleg mótmæli verða alltaf vel þegin en aðferðir okkar geta ekki verið eins og aðferðir vinstrimanna.“
Forsetinn benti á að vinstrisinnaðir óeirðaseggir í Brasilíu væru þeir sem stunduðu venjulega „árásir á eignir, eyðileggingu á sögustöðum“ og önnur ofbeldisverk, sem letja stuðningsmenn frá slíkri hegðun. „Við erum fyrir reglu og framfarir“ sagði forsetinn. „Öfugt við gagnrýnendur mína hef ég alltaf haldið mér innan fjögurra lína stjórnarskrárinnar“
Hefur meirihluta á þingi
Bolsonaro var bjartsýnn og lýsti því yfir að „draumar íhaldshreyfingarinnar væru meira lifandi en nokkru sinni fyrr“
„Öflug staða okkar á þinginu, styrkleikinn í gildum okkar – Guði, föðurlandi, fjölskyldu og frelsi. Við stjórnum ýmsum leiðandi stofnunum í Brasilíu.“
Bolsonaro minntist hvorki á Lula né játaði sig sigraðan eða gaf á nokkurn hátt til kynna hvernig forsetaskiptin færu fram. Starfsmannastjóri hans, Ciro Nogueira, ávarpaði blaðamenn stuttlega til að staðfesta að umbreytingarferli yfir í þriðju Lula-stjórnina myndi hefjast „samkvæmt lögum“ sem gefur til kynna, að Bolsonaro muni ekki ganga gegn kosningaúrslitunum.