
Breski ráðherrann Nick Thomas-Symonds segir stuld á farsíma sínum, síðasta haust hafa orðið að „algjörri martröð“ eftir að í ljós kom að skilaboð hans við Peter Mandelson væru ekki meðal þeirra gagna sem birt hafa verið í tengslum við Jeffrey Epstein-málið. Fjallað er um málið á vef Politico.
Thomas-Symonds hélt því fram að hópur 3ja manna á bifhjólum hafi stolið símanum hans þann 15. október þegar hann gekk nálægt innanríkisráðuneytinu í London.
Missti persónulegar myndir og skilaboð
Ráðherrann sagði að með símanum hefðu horfið bæði WhatsApp-samskipti og persónulegar ljósmyndir sem hann hefði geymt í mörg ár. Hann sagði endurheimt gagnanna hafa reynst afar erfið og lýsti atvikinu sem mikilli martröð.
Málið hefur vakið sérstaka athygli þar sem skilaboð milli Thomas-Symonds og Peter Mandelson eru ekki meðal þeirra samskipta sem bresk stjórnvöld hafa afhent þingmönnum vegna rannsóknar á tengslum Mandelson við Jeffrey Epstein.
Þingmenn kröfðust birtingar samskipta
Breskir þingmenn fóru í febrúar fram á, að stjórnvöld birtu samskipti milli Mandelson, ráðherra og embættismanna til að varpa ljósi á hvað stjórnvöld vissu um tengsl Mandelson við Epstein. Ráðherrar og embættismenn voru beðnir um að afhenda öll skilaboð og samskipti við Mandelson til að verða við kröfum þingsins. Thomas-Symonds sagði að samskipti þeirra hefðu meðal annars snúist um hamingjuóskir vegna nýrra embætta og kosningabaráttu Mandelson vegna kanslaraembættis Oxford-háskóla.
Fleiri háttsettir starfsmenn segjast hafa lent í símaþjófnaði
Thomas-Symonds var ekki eini háttsetti starfsmaður breskra stjórnvalda sem segist hafa orðið fyrir símaþjófnaði á þessum tíma. Morgan McSweeney, helsti ráðgjafi Keir Starmer forsætisráðherra, segist einnig hafa orðið fyrir símaþjófnaði aðeins 5 dögum síðar þegar maður á reiðhjóli reif af honum símann.
