Nýji Brexit-flokkur Nigel Farage skýst fram úr öllum öðrum flokkum í Bretlandi og leiðir með 27% fylgi í skoðanakönnunum í ESB-þingkosningunum (sjá mynd að neðan). Næstur kemur Verkamannaflokkurinn með 22% og Íhaldsflokkurinn mælist aðeins með 15%. Margir Íhaldsmenn munu kjósa Brexit-flokkinn og í næstu viku mun nefnd Íhaldsflokksins koma saman til að ræða lagabreytingu á reglum flokksins svo hægt verði fljótlega að lýsa yfir vantrausti á Theresu May og losa flokkinn við hana. Nigel Farage segir að tveggja flokka kerfið virki ekki í Bretlandi „því flokkarnir þjóna engu nema eigin hagsmunum og dagskrá í stað þess að vinna fyrir þjóðina á breiðari grundvelli. Kjósendur eru komnir með upp í kok af misheppnuðum stjórnmálamönnum sem eru alltaf með hótanir vegna Brexit. Markmið okkar er að heyja kosningabaráttu í þessum Evrópukosningum og vinna þær.“ Farage sagði í vikuni að nýr flokkur hans gæti stokkað upp tveggja flokka stjórnmálakerfi Bretlands og „leitt það út úr eymdinni“ samtímis sem hann hvatti kjósendur til að hefja vegferð „stjórnmálalegrar byltingar.“