
Það að lagðar hafi verið fram tillögur um breytingar á hefðbundnum fjölskylduhugtökum er áhyggjuefni og vert að velta fyrir sér hvaða afleiðingar það kann að hafa á tungumálið. Þetta segir Leifur Árnason flugstjóri en hann var gestur Valgerðar Jónsdóttur í Menntaspjallinu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Píratar vilja nota nafnið “foreldri” í stað faðir og móðir
Leifur gagnrýndi meðal annars að frumvarp Pírata hafi komið fram um að nota hugtakið „foreldri“ í stað orða eins og „faðir“ og „móðir“ og að önnur hugtök sem tengjast fjölskyldu séu endurskilgreind í frumvarpinu til að taka tillit til nútímalegra viðhorfa.
Breytingar á hefðbundnum íslenskum orðum getur skapað upplausn
Leifur lagði áherslu á að breytingar sem þessar gætu haft áhrif á þann mikilvæga arf sem íslenska tungan er og að orð sem lýsa fjölskyldutengslum hafi djúpa merkingu og sterkar rætur í sögu og menningu þjóðarinnar. Hann tók dæmi um að áratuga hefð sé fyrir orðunum „föðuramma“ og „móðuramma“ og að breytt orðanotkun geti skapað upplausn í hefðbundnum fjölskyldutengslum, auk þess að veikja tengsl þjóðarinnar við tungumál sitt.
Orð eins og “stórforeldri” kæmu í stað langafi og langamma
Leifur taldi að tungumálinu ætti ekki að breyta til þess að mæta nýjum hugmyndum um fjölskyldu og að slíkar breytingar þyrftu að vera afar vel ígrundaðar. Í viðtalinu lýsti hann áhyggjum af því að hugtök eins og „stórforeldri“ kæmu í stað orða eins og „langafi“ og „langamma“ og að slíkar breytingar gætu haft neikvæð áhrif á íslenskt mál og orðræðu sem byggir á fjölskyldutengslum. Hann benti á að þetta skipti máli ekki aðeins í daglegu tali heldur einnig í menntakerfinu þar sem mikilvægt sé að börn læri að meta menningarsögu sína og að tungumálið endurspegli þessa sögu.
Mikilvægt að varðveita íslenska tungu og halda í orð sem tengjast fjölskyldunni
Að lokum hvatti Leifur til þess að lögð yrði aukin áhersla á að varðveita íslenska tungu og halda í orð sem tengjast fjölskyldunni í sinni upprunalegu mynd. Hann taldi það vera á ábyrgð Alþingis að sýna virðingu fyrir íslenskri tungu og halda í þau fjölskylduhugtök sem byggja á aldagömlum hefðum og gildum sem skipta þjóðina miklu.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan
