
Félagið Carbfix vill koma á geymslu og kolefnismóttöku við Vallarhverfið í Hafnarfirði og áformar að taka þar á móti koltvíoxíði til niðurdælingar og hafa menn talsverðar áhyggjur af þeirri fyrirhugðu starfsemi. Ekki er hægt að fullyrða að efnið sé ómengað og allt eins líklegt að svo sé ekki. Efnið kemur frá blönduðum iðnaði eins og áliðnaði og stálbræðslum og getur innihaldið ýmis snefilefni. Gert er ráð fyrir að 130 eiturefnaskip sigli um Faxaflóa á ári hverju. Þetta segir Guðmundur Helgi Víglundsson véltæknifræðingur en hann var gestur í þætti Arnþrúðar Karlsdóttur í dag.
Guðmundur segir það koltvíoxíð sem ætlunin er að dæla niður í Hafnarfirði sé gjörólíkt því efni sem dælt sé niður á Hellisheiði enda sé það efni sem þar sé dælt niður afar hreint en efninu sem á að dæla niður í Hafnarfirði sé ógjörningur að hreinsa og því fylgi mengandi efni því niður í jarðveginn. Það sé vegna þess að það efni komi meðal annars frá ál og stáliðnaðarframleiðslu.
Íbúar í Hafnarfirði og nágrenni ekki nægjanlega upplýstir
Hann segir um mjög mikið inngrip í náttúruna að ræða sem alltof lítil umræða hafi verið um og íbúum hafi ekki verið kynnt áformin með fullnægjandi hætti. Hann segir afar mikilvægt að íbúar á svæðinu kynni sér ítarlega hvað hér sé á ferðinni og hvað sé í vændum.
Hann bendir á að á heimasíðu Carbfix komi beinlínis fram að efnið sé líkt og sýra sem brenni sig niður í berglög og veldur því að þau losi málma á borð við kalsíum, magnesíum og járn.
Niðurdælingin eykur líkur á jarðskjálfta
Þá sé ljóst að miklar jarðsprungur séu á Reykjanesi og aðliggjandi svæðum og niðurdælingarnar geti haft þar áhrif enda hefur niðurdæling á Hellisheiði til að mynda valdið jarðskjálftum í Hveragerði. Guðmundur segir að staðan sé einfaldlega sú að nú sé jarðeldatímabil á Reykjanesi sem auki hættuna á að eitthvað geti farið úrskeiðis með ófyrirséðum afleiðingum. Þá gæti mengun af þessum efnum jafnvel borist út í grunnvatn og þá geti yfirborð grunnvatns hækkað að auki um allt að 40 cm. Það sé óafturkræft ef slík eiturefni komist í grunnvatnslindir sem sé auðvitað neysluvatn Hafnfirðinga og fleiri.
Starfsemin við hliðina á Álverinu
Hann segir það í meira lagi sérkennilegt að Río Tinto sem reki Álverið í Straumsvík skuli skrifa upp á viljayfirlýsingu um að þessi starfsemi verði sett niður steinsnar frá Álverinu sem sé afar mikils virði.
Hópur á facebook sem vill mótmæla þessari starfsemi er undir eftirfarandi status: mótmælum staðsetningu við Coda Terminal við íbúðabyggð
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun um málið í spilaranum hér að neðan
