
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í nótt. Alls voru skráð 58 mál á vaktinni og þrír einstaklingar gista nú í fangageymslu. Alvarlegasta málið sneri að manni sem datt af rafhlaupahjóli og hlaut töluverða áverka í andliti auk gruns um beinbrot. Hann var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans til skoðunar.
Óboðinn gestur handtekinn eftir innbrot
Lögregla hafði afskipti af manni sem var óvelkominn í anddyri hótels í miðborginni. Honum var vísað á brott en síðar um nóttina var hann ásamt öðrum manni handtekinn eftir að hafa brotið sér leið inn í sameign í íbúðarhúsi í nágrenninu. Annar þeirra sparkaði í lögreglumann við skyldustörf og voru báðir vistaðir í þágu rannsóknar.
Sparkaði og barði í bifreið í miðborginni
Skömmu síðar hafði lögreglan afskipti af manni sem sparkaði og barði í bifreið sem stóð í stæði í miðborginni. Við atvikið brotnaði hliðarspegill bifreiðarinnar. Ökumaðurinn kallaði á lögreglu og reyndist meintur gerandi vera undir áhrifum áfengis. Hann var vistaður í þágu rannsóknar málsins.
Ökumenn án réttinda og grunur um falskt ökuskírteini
Þrír ökumenn voru stöðvaðir vegna aksturs án ökuréttinda. Einn þeirra er grunaður um að hafa framvísað fölsuðu ökuskírteini. Þá var einnig einn ökumaður tekinn fyrir akstur undir áhrifum áfengis og var hann látinn laus að blóðsýnatöku lokinni.
Þjófnaður á hóteli og læti við skóla
Tilkynnt var um þjófnað á hóteli í miðborginni og er málið í rannsókn. Þá barst lögreglu tilkynning um læti fyrir utan skóla í austurbænum, en í ljós kom að nemendur voru að saga spýtur fyrir skólaverkefni. Rætt var við þau og leystist málið farsællega.
Hraðakstur í Hafnarfirði
Lögregla stýrði umferð á Hafnarfjarðarvegi þar sem umferðarljós voru óvirk í morgunsárið. Þá var ökumaður stöðvaður fyrir að aka á 72 km hraða þar sem hámarkshraði er 40 km á klukkustund og á hann yfir höfði sér sekt.
Hávaði í Grafarvogi
Lögreglu barst einnig tilkynning um hávaða í Grafarvogi. Húsráðendur sáu að sér og lofuðu að lækka tónlistina.
