Donald Tusk boðar afskipti af þjóðaratkvæðagreiðslu á Íslandi

Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson ræddu á Útvarpi Sögu í dag um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við Evrópusambandið. Þar kom fram að Donald Tusk forsætisráðherra Póllands hefði í gær á fundi með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra lýst yfir vilja til að aðstoða Ísland við inngöngu í Evrópusambandið. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Í þættinum var bent á að þessi yfirlýsing félli í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu hér á landi sem Kristrún Frostadóttir hafði tilkynnt um á fundi erlendis og á blaðamannafundi í Póllandi. Þar sagði Kristrún að stefnt væri að halda þjóðaratkvæðagreiðslu á Íslandi á næstu mánuðum.

Donald Tusk bauð aðstoð Póllands við að koma Íslandi í ESB

Fram kom að yfirlýsing Donald Tusk hefði verið sett fram á alþjóðlegum vettvangi áður en nánari upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðsluna hefðu verið kynntar hér á landi, þar á meðal dagsetning eða framkvæmd hennar. Arnþrúður benti á að slík ummæli erlends stjórnvalds væri alvarleg og gætu haft þýðingu í aðdraganda kosninga hér á landi. Í því sambandi benti Arnþrúður á að hér á landi búi 30 – 40.000 Pólverjar og velti því upp hvort Tusk ætlaði að reyna að hafa áhrif á afstöðu þeirra til aðildarviðræðna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Það væri óeðlilegt að ráðandi öfl í Póllandi hefðu bein áhrif á kosningar í öðru landi eins og í þessu tilfelli Íslandi.

Yfirlýsingar Kristrúnar fyrir kosningar rifjaðar upp

Í þættinum var jafnframt vísað til viðtals við Kristrúnu Frostadóttur fyrir alþingiskosningar í nóvember 2024 þar sem hún lagði áherslu á að efnahagsmál, ríkisfjármál og heilbrigðismál yrðu í forgangi en ekki aðildarviðræður við Evrópusambandið. Mál ESB yrðu ekki á dagskrá á næsta kjörtímabili sagði Kristrún stuttu fyrir síðustu alþingiskosningar. Spilað var brot úr viðtali Arnþrúðar Karlsdóttur við Kristrúnu í nóvember 2024 studdu fyrir Alþingiskosningarnar þar sem Samfylkingin fékk mjög góða kosningu með Kristrúnu sem formann.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun og heyra ummæli Kristrúnar í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila