Efla bráðaþjónustu um allt land með bættum tækjabúnaði

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita heilbrigðisstofnunum utan höfuðborgarsvæðisins 113,5 milljónir króna til kaupa á tækjabúnaði sem styrkir bráðaþjónustu um allt land. Ákvörðunin er byggð á tillögu viðbragðsteymis um bráðaþjónustu. Markmiðið er að auka getu heilbrigðisstofnana til að veita bráðaþjónustu og stuðla að jafnara aðgengi að þjónustunni á landsvísu.

Viðbragðsteymi um bráðaþjónustu í landinu hefur undanfarið skoðað leiðir til að efla og bæta bráðaþjónustu um allt land, meðal annars með áherslu á að tryggja jafnara aðgengi landsmanna. Liður í því var að skilgreina hvaða búnaður þarf að vera fyrir hendi á þeim starfsstöðvum heilbrigðisstofnana sem gegna hlutverki bráðamóttöku en ein slík er í hverju heilbrigðisumdæmi. Viðbragðsteymið kannaði hvaða stöðvar uppfylltu skilgreiningu á nauðsynlegum tækjabúnaði og ástand búnaðarins. Jafnframt var gerð kostnaðaráætlun vegna kaupa á tækjum sem vantaði eða þyrfti að endurnýja og hljóðaði hún upp á 113,5 milljónir króna.

Nokkuð misjafnt er eftir heilbrigðisumdæmum hversu vel þær eru tækjum búnar. Með fjárveitingunni er stefnt að því að jafna stöðu þeirra og þar með aðgengi íbúa að bráðaþjónustu hvar sem þeir búa. Þetta tryggir jafnframt skjótari viðbrögð við bráðum veikindum eða slysum þegar þeirra er þörf og dregur úr þörf fyrir sjúkraflutninga milli heilbrigðisumdæma.

Í tilkynningu segir að vinnu á vegum viðbragðteymis um bráðaþjónustu verði haldið áfram og tækjabúnaður á heilsugæslustöðvum og í heilsugæsluseljum skilgreindur og kannaður.

Þá segir að mikilvægt sé að tryggja nauðsynlegan búnað sem víðast á landinu og þar með jafna aðstæður til þess að veita bráðaþjónustu eins og hægt er.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila