Efling hafnar prósentuhækkunum og gerir SA tilboð um skammtímasamning

Samninganefnd Eflingar – stéttarfélags hefur samþykkt að gera Samtökum atvinnulífsins tilboð um kjarasamning til rúmlega árs. Tilboðið hljóðar upp á 56.700 króna flata krónutöluhækkun á öll laun og 15.000 kr. framfærsluuppbót til viðbótar. Þessar hækkanir komi til framkvæmda frá 1. nóvember 2022. Ger er ráð fyrir að samningurinn muni gilda til 31. janúar 2024.

Með þessu telur Efling sig koma til móts við kröfur um skammtíma kjarasamning sem komið hafa frá öðrum verkalýðsfélögum, ríkisstjórninni og SA.Þá segir segja forsvarsmenn Eflingar að hækkanir í tilboðinu séu mjög áþekkar því sem gera hefði mátt ráð fyrir á fyrsta ári í þriggja ára samningi, sem krafist var í upphaflegri kröfugerð.

Það er mat samninganefndar Eflingar að nauðsynlegt sé að umsamdar hækkanir verji heimili láglauna- og meðaltekjufólks fyrir áhrifum verðbólgunnar og tryggi þeim eðlilega hlutdeild í hagvexti og fádæma góðri afkomu fyrirtækjanna. Gildir þar einu hvort samið er til skamms eða langs tíma.

Samninganefnd Eflingar telur önnur stéttarfélög hafa gert mistök með því að fallast á aðferðafræði prósentuhækkana í viðræðum við SA. Tillögur hafa verið til umræðu þar sem gert er ráð fyrir tvöfalt meiri hækkunum til hátekjuhópa en til láglaunafólks.

„Allir eru sammála um að ofþensla og ofneysla í hærri helmingi launastigans eru eitt helsta vandamálið í íslensku efnahagslífi. Seðlabankinn hefur gripið til hóprefsinga gegn allri þjóðinni í formi stýrivaxtahækkana með vísan til þessarar stöðu. Í þessu samhengi er það augljós fjarstæða að ræða um að hálaunafólk eigi að fá tvöfaldar hækkanir á við láglaunafólk,” sagði Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.

„Það er hins vegar mögulegt að laga sig að kröfum um skammtímasamning. Tilboð okkar er skammtíma útfærsla á skynsamri og vel rökstuddri kröfugerð samninganefndar Eflingar,“ sagði Sólveig Anna jafnframt.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila