Efling krefst umfjöllunar dómstóla um miðlunartillögu

Stéttarfélagið Efling hefur svarað erindi frá Aðalsteini Leifssyni ríkissáttasemjara þar sem félagið er boðað á fund sem sagður er eiga að vera um atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu embættisins.

Í tilkynningu segir að Efling muni að sjálfsögðu hlíta endanlegri niðurstöðu dómstóla. Sú niðurstaða liggi þó ekki fyrir þó ríkissáttasemjari láti sem svo sé.

Efling hefur kært niðurstöðuna til Landsréttar enda telji Efling mikilvægt að leyst sé úr málinu fyrir æðri dómstól. Að mati Eflingar séu allir sammála um að málið sé án fordæma og um leið mjög mikilvægt.

„Efling trúir því ekki að ríkissáttasemjari ætli að þvinga fram aðför á grundvelli niðurstöðu lægra dómstigs á meðan beðið er eftir endanlegri niðurstöðu æðri dómstóla. Með því væri ríkissáttasemjari sem stjórnvald að grípa fram fyrir hendur dómstóla og um leið að skerða rétt Eflingar til réttlátrar málsmeðferðar. Síðast en ekki síst væri ríkissáttasemjari að svipta allan vinnumarkaðinn tækifærinu á að fá skýrt fordæmi frá æðri dómstól.“

Þá segir Efling að þar sem ríkissáttasemjari hafi auglýst opinberlega að hann hafi boðað fulltrúa Eflingar á sinn fund vilji félagið birta opinberlega svar sitt við erindi hans.

Hér að neðan má sjá bréf Eflingar til ríkissáttasemjara:

Sæll Aðalsteinn.

Niðurstaða héraðsdóms í dag er óumdeilanlega kæranleg til Landsréttar.

Efling lýsti því samstundis yfir í héraðsdómi í dag að úrskurðinn væri kærður.

Efling stefnir að því að leggja öll gögn fram í kærumálinu á morgun þannig að hraða megi málsmeðferð kærumálsins.

Ég minni á að þitt embætti lagði mikla áherslu á að málinu yrði hraðað verulega í héraðsdómi.

Efling gerði allt til að svo mætti vera. Efling skilaði greinargerð ásamt öllum sínum gögnum og flutti málið, allt á fjórum sólarhringum.

Efling gerir ráð fyrir að Ríkissáttasemjari sýni Eflingu sömu kurteisi og virðingu.

Fyrst og fremst gerir Efling ráð fyrir því að Ríkissáttasemjari hafi ekki af stéttarfélaginu þá réttlátu málsmeðferð sem felst í úrlausn á tveimur dómstigum.

Efling mun að sjálfsögðu hlíta niðurstöðu dómstóla, verði hún endanleg.

Eins og bent hefur verið á er hin umbeðna kjörskrá ekki til en hana þarf að útbúa sérstaklega.

Verði Ríkissáttasemjari ekki við þessari sjálfsögðu ósk um að klára málið endanlega er óskað eftir rökstuðningi fyrir því. Ég er tilbúin að mæta á fund á morgun til þess að ræða málin frekar. Ég kemst aftur á móti ekki kl. 10.15 eins og þú leggur til þar sem að ég er önnum kafin við að undirbúa verkfallsaðgerðir og fundahöld þeim tengd fyrir hádegi og frameftir degi. Einnig tekur það mig tíma að boða samninganefnd á fundinn sem hér um ræðir.

Kveðja, Sólveig Anna Jónsdóttir
Efling – stéttarfélag  | Formaður

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila