ÉG HEITI REBEKKA VIÐ ERUM 2.700 …

Hallur Hallsson blaðamaður og sagnfræðingur skrifar:

Síðastliðinn laugardag var ráðstefna í Bíó-Paradís á vegum samtakanna FRELSI & ÁBYRGРþar sem saman kom fólk til málþings til þess að ræða: „Heilsutjón sem fólk hefur orðið fyrir af völdum aðgerða stjórnvalda síðastliðin tvö ár.“ Þar var kona stofnandi Facebook hóps sem sagði sögu sína:

Ég heiti Rebekka … Ég stofnaði hóp eftir að ég byrjaði á blæðingum, ég endaði á blæðingum í 53 sólarhringa mjög miklum & þungum blæðingum. Þegar hópurinn var í kring um 600 konur þá hafði ég samband við Landlækni,… þá var ákveðið að rannsaka þetta mál af Lyfjastofnun & ‚óháðum læknum‘. 19. ágúst [2021] var hringt í mig af kvensjúkdómalækni sem spurði spurninga í gegn um síma. Ekkert annað … svo kom niðurstaða: orsakir blæðinga mjög líklega ekki bólusetningar. Við værum mjög líklega stressaðar í heimsfaraldri. Í dag eru rétt tæplega 2.700 konur í hópnum

BLÆÐINGAR TABÚ KVENNA

Sumar konur hafa ekki verið á blæðingum í sjö átta mánuði … sumar konur missa hár … sumar konur eru með útbrot á líkama … sumar með vöðvaverki, mikið kvefaðar … og hafa verið mikið veikar frá bólusetningu … konur sem eru komnar í gegn um breytingaskeið fyrir löngu eru byrjaðar aftur á blæðingum … sjötugar & eldri … það eru konur sem hafa misst fóstur og telja bólusetningar orsök fósturmissis … það eru konur sem hafa fætt andvana börn … konur sem glíma við þunglyndi & kvíða sem þær fundu ekki áður … brjóstaspenna … verkir sem fylgja blæðingum eru á pari við hríðarverki … segja allar konur sem hafa átt börn & þekkja hríðarverki … mér fannst þetta skrítin rannsókn að taka ekki eina konu til líkamlegrar rannsóknar … það var hringt í örfáar konur … innan við 30 konur … ég skil ekki hvernig hægt að standa að rannsókn þegar engin kona er tekin til líkamlegrar skoðunar.

Svo er annað sem ég tek eftir að konur fara ekki til læknis fyrr en næstum líf þeirra liggur við … margar búnar glíma við aukaverkanir í 6-7 mánuði án þess fara til læknis … Hjá læknum fá konur þau svör að þetta lagist að öllum líkindum, það sé ekkert við þessu að gera. Þú verður bara að bíða. Núna glíma margar konur við vandamál eftir þriðju sprautu … erfitt fyrir konur að stíga fram … blæðingar kvenna eru tabú líkt & risvandamál karla 

KONUR SEM EKKI HLUSTA

Svo mörg voru orð Rebekku. Konur stjórna þessu landi. Kona er forsætisráðherra, kona er dómsmálaráðherra, kona er utanríkisráðherra, kona er Landlæknir, kona er forstjóri Lyfjastofnunar … þær loka allar eyrum & hluta ekki á ákall 2.700 kynsystra sinna. Hversu galið er það? Engin þingkona spyrnir við fótum. Konur eru með fjármálastjóra í fjármálaráðuneytinu & karl í heilbrigðisráðuneytinu. Einn varaþingmaður – aðeins einn varamaður – Arnar Þór Jónsson beitir sér af þunga & er með mál þessara kvenna gegn ríkinu.  Konur – & karlar –  sem stjórna okkur Íslendingum hafa gert íslenska þjóð, menn konur & börn að tilraunadýrum alþjóða-lyfjarisa. Afleiðingar eru skelfilegar … alveg skelfilegar. Ég endurtek: leiðtogar okkar ganga erinda lyfjarisa & þeir ganga erinda ofsaríkra fasista í Davos.

Rebekka

Í Ameríku hafa tug-þúsundir lækna myndað samtök American Fronline Doctorstil að spyrna við fótum. Hér á landi hafa engin samtök myndast, blaða- & fréttamenn okkar ljúga eða þegja. Aðeins frettir.is & Útvarp Saga án ríkisstyrkja reyna að vekja þjóðina. Amerískar risa-trukkalestir stefna til Washington, milljónir mótmæla í Evrópu í viku hverri, næstum milljón hafa undirritað Great Barrington Declaration gegn viðbrögðum stjórnvalda, breskir þegnar hafa stefnt Boris Johnson & 15 öðrum fyrir Alþjóða Glæpadómstólinn í Haag. Að gera fólk að tilraunadýrum án upplýsts samþykkis er brot gegn Nurnberg-siðareglunum & glæpur gegn mannkyni. Leiðtogar okkar hafa brugðist … með saknæmum hætti … Hvenær vaknar þjóð mín?

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila