
Ein þrettándabrenna verður haldin í Reykjavík á morgun þriðjudaginn 6. janúar þegar jólunum er formlega kvatt og Kertasníkir síðastur jólasveina heldur aftur til fjalla.
Brenna og dagskrá við Gufunesbæ
Þrettándabrennan fer fram við Gufunesbæ og hefst dagskráin klukkan 18:00. Jólasveinar verða á svæðinu og tónlistarmaðurinn Jón Jónsson flytur tónlist frá klukkan 18:30 til 19:00. Þrettándagleðinni lýkur með flugeldasýningu klukkan 19:00.
Fólk mæti tímanlega
Gestir eru beðnir um að mæta tímanlega. Hægt er að leggja bílum við Rimaskóla og Gylfaflöt og ganga þaðan að Gufunesbæ. Engin þrettándabrenna verður haldin við Ægisíðu í ár.
