Einar Geir leiðir lista Miðflokksins í Hafnarfirði

Stjórn Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi hefur samþykkt framboðslista flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Hafnarfirði. Einar Geir Þorsteinsson, lögmaður, skipar efsta sæti listans.

Fjölbreyttur hópur í efstu sætum

Í öðru sæti er Signý Jóna Tryggvadóttir, mannauðssérfræðingur, og í þriðja sæti Böðvar Ingi Guðbjartsson, kennari og pípulagningameistari. Þar á eftir fylgja frambjóðendur með bakgrunn í viðskiptum, fjármálum og markaðsmálum.

Listinn einkennist af fjölbreyttum hópi fólks úr ólíkum starfsgreinum, þar á meðal úr fluggeiranum, iðnaði og þjónustu, auk einstaklinga á mismunandi stigum starfsævinnar.

22 skipa listann

Alls skipa 22 einstaklingar framboðslista Miðflokksins í Hafnarfirði.

1. Einar Geir Þorsteinsson, lögmaður
2. Signý Jóna Tryggvadóttir, mannauðssérfræðingur
3. Böðvar Ingi Guðbjartsson, kennari og pípulagningameistari
4. Eva Rún Helgadóttir, viðskiptafræðingur
5. Arnhildur Ásdís Kolbeins, fjármálastjóri
6. Stefán Gunnarsson, markaðsstjóri
7. Margrét Elín Arnarsdóttir, flugstjóri
8. Lena Karen Andreasdóttir, viðskiptastjóri
9. Þórður Hugo Björnsson, nemi
10. Helga Margrét Sveinsdóttir, eftirlaunaþegi
11. Hjörtur Þórisson, ráðgjafi hjá Klettabæ
12. Magnús Pálsson, málarameistari
13. Þorkell Gunnarsson, framkvæmdastjóri
14. Kolbrún K. Róbertsdóttir, framkvæmdarstjóri og myndlistarkona
15. Jóhann Kristinn Jóhannesson, fasteignasali
16. Kristín Þóra Reynisdóttir, viðskiptafræðingur
17. Vilhjálmur Steinarsson, kennari
18. Kristmundur Skarphéðinsson, vélstjóri
19. Kolbeinn Helgi Kristinsson, atvinnurekandi
20. Reynir Elís Þorvaldsson, sölustjóri
21. Indriði Kristinsson, stýrimaður
22. Hilmar Kristensson, bifreiðastjóri

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila