Ákvörðun um bann við framleiðslu bíla með brunahreyflum tekin viku fyrir loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna
Eftir lokaákvörðun á ESB-þinginu er það nú orðið opinbert – eftir 2035 verður sala nýrra bíla með brunahreyflum bönnuð innan Evrópusambandsins. Jan Huitema, aðalsamningamaður ESB-þingsins segir ákvörðunina „upphaf mikillar umbreytingar á Evrópusambandinu.“
Auk þess að leyfa eingöngu rafbíla hefur ESB einnig ákveðið að draga úr losun koltvísýrings um 55 % fyrir nýja bíla sem seldir eru á árunum 2030 til 2035. Frans Timmermans, loftslagsstjóri ESB segir:
„Evrópskir bílaframleiðendur hafa þegar sannað, að þeir eru tilbúnir til að taka þetta skref með sífellt fleiri og ódýrari rafbílum sem koma á markaðinn. Hraðinn, sem þessi breyting hefur átt sér stað á síðustu árum, er ótrúlegur.“
Samtímis krefst bílaiðnaðurinn, að ESB fjárfesti í þróun endurnýjanlegrar orku til að hlaða bílana og í stóru hleðsluneti. Minni sérbílaframleiðendur eins og Lamborghini, Ferrari, Porsche og Koenigsegg fá undanþágu og mega halda áfram að selja bensínbíla í eitt ár til viðbótar til ársins 2036.
Enn sem komið er eru ekki uppi nein áform um að banna bensín- og dísilbíla í einkaeigu ár 2035. Ákvörðun ESB-þingsins kemur viku áður en Sameinuðu þjóðirnar halda loftslagsráðstefnu í Egyptalandi COP27.
Ódýrara að fylla bensíntankinn en að hlaða rafbílinn
Verslunarráð Stokkhólms hefur reiknað út að það verður miklu dýrara að hlaða rafbílinn en að keyra á bensíni eða olíu í vetur vegna fáránlegs okurverðs raforku í nafni Grænu byltingarinnar. Carl Bergkvist sérfræðingur verslunarráðs segir, að eigendur rafbíla verða að vera sérstaklega varkárir þegar þeir hlaða bílinn í vetur og helst hlaða á nóttinni og alls ekki hlaða bílinn vissa daga, þegar rafmagnið er dýrast. Aukin mótmæli gegn árás á lífskjör almennings eiga sér stað víða í Evrópu en málgögn glóbalista segja lítið sem ekkert frá þeim. Hér að neðan er myndband frá 70 þúsund manna mótmælum í Prag nýlega, þegar verið var að mótmæla dýrtíð og stefnu yfirvalda að ausa peningum í stríðið í Úkraínu í stað þess að hjálpa landsmönnum gegn verðbólgunni.
Hættulegur bruni rafmagnsbíla
Sjálfsíkveikjur rafmagnsbíla eru hættulegar, þegar þær verða út frá lithíum rafgeymi bílsins. Verða slökkviliðsmenn að sýna varkárni við slökkvistarf, þar sem hætta er á að rafgeymirinn springi. Hér að neðan mynd frá Bandaríkjunum eftir að slökkt var í einum rafbíl.