Ekki neyðarástand í loftslagsmálum heldur hræðsluáróður

Það er ekki neyðarástand í loftslagsmálum eins og haldið sé fram, heldur er yfirlýsingum um neyðarásand slengt fram í hræðsluáróðursskyni því orð eins og nauðsyn sem notað hefur verið áður í sama sambandi er hætt að virka og hafa áhrif á fólk. Það sama gildir um mörg önnur orð sem notuð eru í áróðurskyni og eru ofnotuð. Spennandi verði að vita hvað kemur næst því það mun ekkert breytast. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Kristins Sigurjónssonar rafmagns og efnaverkfræðings í viðtali Arnþrúðar Karlsdóttur við Kristinn í dag.

Kristinn segir að þegar talað er um loftslagsvá sé einblínt á það sem snúi að koltvíoxíði. Þar standi Ísland einmitt vel þar sem hér á landi sé til að mynda ekki notast við húshitun sem myndi koltvíoxíð.

“en því miður var skrifað undir einhverja fáránlega yfirlýsingu um að við ætluðum að minnka koltvíoxíð og eins og gjarnan gerist í alþjóðasamþykktum er verið að tala um prósentur frá líðandi stundu. En þar sem Íslendingar voru þegar búnir að fara í mjög hreina kyndingu úr kolakyndingu, þá var þetta mjög erfitt fyrir Ísland og með ólíkindum að ráðamönnum skuli hafa dottið þetta í hug”segir Kristinn.

Þannig sé það í raun mjög ósanngjarnt að miða Ísland við önnur lönd þegar kemur að þessum málum enda séu hér forsendur allt aðrar.

“það er ljóst að vegna þessa á almenningur hér eftir að lenda í verulegum skattaútgjöldum”segir Kristinn.

Hvað varðar kolefniskatt á flug á Íslandi segir Kristinn að erlendis sé búið að þróa lestar sem gangi á svokölluðum segulpúðum. Lestir þessar ná allt að sama hraða og farþegaþotur. Kristinn segir að þegar kolefnisskatturinn tekur gildi verði mikil þróun í þessum efnum í Evrópu.

“en vandamálið er að við höfum bara enga möguleika á því hér og það eina sem við munum gera er að þurfa að borga skattinn, og það sem verra er að mögulega fer svo skatturinn í svona verkefni”segir Kristinn.

Galið að segja fólki að hætta að borða kjöt

Eitt af því sem notað er í loftslagsáróðrinum er að telja fólki trú um að það eigi að hætta að borða kjöt. Það að segja fólki að hætta að borða kjöt segir Kristinn vera alveg galið. Hann bendir á að þau efni sem fást úr plönturíkinu séu aðallega sykrur en spendýr eins og til dæmis menn séu ekki með eiginleika til að breyta sykrum í prótein svo neinu nemi og því þurfi prótín til þess að byggja upp vöðva, því vöðvar séu að megninu til prótein. Því sé betra að borða kjöt til þess að fá próteinið.

“þess vegna er þetta svo galið að segja fólki að hætta að borða kjöt. Við verðum að gefa mannskepnunni prótein”segir Kristinn.

Aðspurður um hvort þarna sé um ákveðna blekkingu að ræða segir Kristinn að hann telji að þegar svona stór hópur sé að halda slíkum hlutum fram sé það klárlega blekking sem stafi sennilega meira af vanþekkingu fremur en einhverri illkvittni.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila