Greinilega er forseti Bandaríkjanna það veikur, að hann á erfitt með gang. Það sanna öll föll mannsins á undanförnum misserum. Núna síðast datt hann eftir að hafa deilt út viðurkenningum til útskrifenda á skóla bandaríska flughersins í Colorado samanber myndina að ofan og myndbandið að neðan. Þegar Donald Trump frétti um fallið, þá sagði hann: „Vonandi hefur hann ekki slasast.“ Öllum ætti að vera ljóst að veikindi forsetans eru komin á það stig að hann þarf aðstoð með gang. Það er ekkert að skammast sín fyrir en göngugrind ætti að komast á dagskrá svo forsetinn geti sjálfur tekið sig fram.
Stuðningsmenn Trump ekki seinir að gera syrpu um Biden: