Engin fíkniefni reyndust vera í pakkningum sem fundust við tollskoðun um borð í skemmtibáti á Höfn í Hornafirði í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Í tilkynningunni segir að nokkur viðbúnaður hafi verið viðhafður vegna grunsemda um möguleg fíkniefni, en að málinu komu lögregluembættin á Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu, auk tollgæslunnar.
Pakkningarnar voru fluttar til Reykjavíkur til frekari skoðunar, sem leiddi í ljós að þær innihéldu ekki fíkniefni líkt og áður sagði. Tveir skipverjar voru yfirheyrðir vegna málsins, en þeir eru nú frjálsir ferða sinna.