
Það er alls engin þörf á að vindmylluvæða landið núna þótt það komi jafnvel að þeim tímapunkti í framtíðinni að það geti nýst okkur, en það sé enn mjög langt í það. Frekar ætti að virkja með vatnsaflsvirkjunum og gera það af skynsemi og með þjóðarhag fyrst og fremst í huga. Þetta segir Ólafur F. Magnússon læknir, tónlistarmaður og fyrrverandi borgarstjóri en hann var gestur Péturs Gunnlaugssonar í Síðdegisútvarpinu.
Ólafur segir að það sé ekkert sem kalli sérstaklega á að hér þurfi að setja upp vindmyllur enda sé hér af nægum kostum að taka þegar kemur að stöðum fyrir vatnsaflsvirkjanir. Ólafur segir að í framtíðinni gæti verið hægt að taka inn vindmyllur í smáum stíl til dæmis í Búrfellslundi en honum lítist ekkert á það sem nú sé í kortunum.
Franskt fyrirtæki setur upp vindmyllur í Dalasýslu
Þá líst honum allra verst á þær áætlanir að franskt fyrirtæki fái að setja upp vindmyllur í Dalasýslu og að það mál lykti af spillingu sem rekja mætti til ákveðins stjórnmálamanns sem hann vilji þó ekki nafngreina þar sem hann vilji ekki gerast of persónulegur.
Vatnsaflsvirkjanir eiga að vera í eigu þjóðarinnar
Leggur Ólafur, sem er mikill umhverfisverndarsinni, áherslu á að fara ætti mun fremur í vatnsaflsvirkjanir með skilyrðum sem ekki ætti að vera erfitt að fara eftir. Þau skilyrði ættu að vera að mati Ólafs þau að allar slíkar virkjanir ættu að vera í eigu þjóðarinnar og ekki ætti að virkja umfram það sem sé þörf fyrir hverju sinni.
Hlusta má á ítarlegri umræður í spilaranum hér að neðan
