Bandaríski útvarpsmaðurinn Wayne Allyn Root spyr, hvort þvingun Bandaríkjastjórnar að láta bólusetja alla opinbera starfsmenn sé runnin undan rifjum kínverskra kommúnista. Útvarp Saga birtir hér í lausri þýðingu hugleiðingar Wayne Root:
„Ég hef slæmar fréttir og góðar fréttir.
Ég geymi góðu fréttirnar þar til í lokin – því þú þarft að fá að vita, að til er von.
Slæmu fréttirnar eru, að landið logar, þökk sé heiladauðum, daufum, gömlum manni með ellisjúkdóm (Joe Biden forseti). Ef þú trúir mér ekki, líttu þá á 14.000 haítíska ólöglega innflytjendur, sem fela sig undir brú í Texas og síðan hleypt inn í Bandaríkin af Biden. Það hlýtur að hjálpa Covid-faraldrinum.
Bólusetningarskyldan stærsta ógn sögunnar gegn þjóðaröryggi Bandaríkjanna
En það versta á eftir að koma. Ég er að vísa til bólusetningarskyldu Bidens. Hún er hættulegasta þjóðaröryggisógn okkar í sögu Bandaríkjanna.
Sem útvarpsstjóri á landsvísu fæ ég þúsundir tölvupósta í hverri viku. Bréfin, sem ég fæ núna, eru hreint út sagt afskaplega sorgleg. Ég fæ hjartaskerandi angistarbréf frá lögreglumönnum, slökkviliðsmönnum, sjúkraflutningamönnum, hjúkrunarfræðingum, liðþjálfum, virkum hermönnum, herflugstjórum og jafnvel frá Sjóhernum.
Vegna bólusetningarskyldunnar búa þeir allir sig undir að hætta störfum eða verða reknir. Þeir vilja ekki láta bólusetja sig. Jafnvel þótt það þýði, að þeir missi ellilífeyrinn. Jafnvel þótt þeir eigi aðeins eitt ár eftir að starfslokum og sex talna lífeyri.
Starfsmenn heilbrigðisþjónustunnar viðurkenna að bóluefnið skaðar og drepur Bandaríkjamenn
Þeir hafa rannsakað bóluefnið. Þeir þekkja hætturnar. Þeir vita, að það lamar, drepur og veikir ónæmiskerfi milljóna Bandaríkjamanna. Þeir hafa séð myndbönd Project Veritas af heilbrigðisstarfsmönnum bandarískra stjórnvalda, sem viðurkenna að Covid bóluefni drepur og skaðar Bandaríkjamenn. Og viðurkenna að ríkisstjórnin okkar breiðir yfir það.
Sem fyrstu viðbragðsaðilar hafa margir þeirra séð dauðastríðið í návígi og persónulega. Þeir sjá bóluefnaslasaða á hverjum degi.
Almennir fjölmiðlar segja ekki frá þessu frekar en um efnið á fartölvu Hunter Bidens. En fjöldi starfmanna sem segir upp störfum, dregur sig í hlé eða lætur reka sig verður átakanlegt. Tjónið verður hrikalegt í landi okkar.
Hugsið um það. Þetta fólk ver Bandaríkin í fremstu víglínu. Hvað ef þriðjungur lögreglumanna segir af sér? Þriðjungur slökkviliðsmanna? Þriðjungur hjúkrunarfræðinga? Þriðjungur fangavarða? Gjörið svo vel.
Heldurðu að ég sé að ýkja? Ég hef aðeins séð eina skoðanakönnun opinbera um þetta efni. Í San Diego segjast 65% lögreglumanna frekar segja upp störfum en að láta bólusetja sig.
Það mun koma í ljós að ágiskun mín er varfærnisleg
Hvað gerist þegar þriðjungur hersins hættir? Þriðjungur orrustuþotuflugmanna? Þriðjungur Sjóhersins? Hver á að verja Ameríku? Þetta er stærsta þjóðaröryggisógn sögunnar.
Varnir okkar verða í molum. Kína þarf bara að halla sér aftur og horfa á okkur eyðileggja okkur sjálf. Datt þér einhvern tíma í hug, að þetta gæti væri planið? Í þessari viku tilkynnti uppljóstrari, að Kína hafi vísvitandi sleppt Covid á herleikunum í Wuhan í október 2019.
Svo, kannski, bara kannski er öll þessi bólusetningarskylduhörmung „made in China.“ Að sundra Bandaríkjunum, veikja efnahagslíf okkar, eyðileggja herinn okkar, búa til skort á fólki í fremstu víglínu, þar rætist draumurinn fyrir Kína.
Þannig vinnur Kína þriðju heimsstyrjöldina án þess að skjóta einu einasta skoti
Svo, hverjar eru þá góðu fréttirnar? Ég hef lausn. Þú getur lesið um hana í glænýju metsölubókinni minni „Bók hinna miklu mótmæla föðurlandsvina og sniðgöngunnar“ (The Great Patriot Protest & Boycott Book). Það er íhaldssama útgáfan af „Reglum fyrir róttæka.“ Þær kenna íhaldsmönnum, hvernig nota má mótmæli, sniðgöngur, hótanir og borgaralega óhlýðni – rétt eins og frjálshyggjumenn hafa gert gegn okkur í áratugi. Tveir geta leikið þennan leik. Það kennir íhaldsmönnum, hvernig á að verða HÁVAÐASAMI MEIRIHLUTINN.
Þessi bók inniheldur meira að segja raunveruleg símanúmer og tölvupósta svo hægt sé að hafa samband við æðstu frjálshyggjumenn og „woke“ forstjórana í Ameríku.
Og ég hef sannanir fyrir því, að það virkar. Bókakaupandi hafði samband við mig í gær. Hann var æstur. Hann sendi þremur forstjórum stærstu fyrirtækja í Ameríku tölvupóst með upplýsingunum í bókinni. Innan nokkurra klukkustunda svöruðu allir þrír forstjórarnir persónulega. Hann sendi mér tölvupóstana þeirra. Öll þrjú voru greinilega dauðhrædd vegna hótana um sniðgöngu þessa íhaldsmanns. Og það frá aðeins einum einstakling, sem hafði samband við þá.
Geturðu ímyndað þér, hvaerju við fáum áorkað, þegar 100.000 íhaldsmenn eða 1 milljón íhaldsmanna hafa samband við stórfyrirfyrirtæki og stjórnmálamenn til að hóta að sniðganga þá og vörur þeirra. Þetta mun gjörbreyta gangi mála.
Þessi slagur er ekki búinn enn þá. Ekki til langs tíma. Ég trúi því að við getum haldið úlfunum í skefjum með þeirri stefnu, sem er að finna í bókinni minni. Og svo árið 2024…
Nýjasta skoðanakönnun Rasmussen sýnir að Donald J. Trump muni vinna Biden með 10 prósenta yfirburðum og Kamala Harris með 13 prósentum.
Eins og Winston Churchill sagði: „Aldrei, aldrei, aldrei, aldrei gefast upp eða hætta.“ Halda trúnni. Riddaraliðið er á leiðinni!
Wayne Allyn Root er þekktur sem „Kempa Íhaldsins“. Nýjasta bók Wayne „Bók hinna miklu mótmæla föðurlandsvina og sniðgöngunnar“ kom út 16. september. Wayne er þáttarstjórnandi „Wayne Allyn Root: Hrátt og ósíað“ á USA Radio Network, daglega frá 18:00 til 21:00 að staðartíma. Upplýsingar á ROOTforAmerica.com og einnig má hlusta í beinni á http://usaradio.com/wayne-allyn-root/ eða „on demand“ 24/7 á iHeartRadio.com.