Eyjólfur: Leigubílstjórar þurfa að standast próf á íslensku og uppfylla nýjar hæfniskröfur

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Eyjólf Ármannsson innviðaráðherra í Síðdegisútvarpinu um nýjar kröfur sem gerðar verða til prófa og íslenskukunnáttu leigubílstjóra. Í umræðunni kom fram að ráðherra hyggist herða reglur um réttindapróf, endurskoða eldri leyfisveitingar og tryggja að tungumálakunnátta ökumanna samræmist eðli þjónustunnar sem þeir veita almenningi. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Endurprófun leyfa eftir lagabreytingar

Eyjólfur sagði í þættinum að til standi að fara yfir próf og leyfisveitingar sem gefnar voru út eftir gildistöku síðustu lagabreytinga um leigubifreiðar. Þetta gildir um öll próf sem voru tekin eftir 1.apríl 2023. Markmiðið sé að staðfesta að próf hafi verið tekin með réttum hætti og að ekki hafi átt sér stað ólögmæt aðstoð eða frávik frá reglum. Í máli hans kom fram að slík endurskoðun væri liður í að tryggja traust á kerfinu og jafnræði þeirra sem sækja um réttindi til aksturs. Með þessari nálgun eigi að tryggja að allir starfandi ökumenn uppfylli sömu faglegu og formlegu skilyrði.

Próf til ökuréttinda verði á íslensku

Ráðherrann lagði áherslu á að próf til öflunar ökuréttinda byggi á íslensku menntakerfi og íslenskum reglum. Eyjólfur sagði í þættinum að eðlilegt væri að slík próf væru haldin á íslensku þar sem starf leigubílstjóra væri þjónustustarf í íslensku samfélagi. Hann benti á að ökumenn flyttu daglega fjölbreyttan hóp farþega, þar á meðal aldraða, fatlaða og börn og því skipti máli að samskipti væru skýr og örugg. Tungumálakunnátta væri því ekki aðeins formlegt skilyrði heldur öryggisatriði.

Íslenskan í opinberri þjónustu

Í umræðunni var vísað til lagaskyldu stjórnvalda til að efla notkun íslensku í opinberu lífi. Eyjólfur sagði í þættinum að leigubifreiðaþjónusta væri hluti af daglegu þjónustuumhverfi landsins og því bæri að gera kröfur um að þeir sem sinna slíkum störfum geti tjáð sig á íslensku. Hann taldi ekki raunhæft að miða við mörg mismunandi tungumál þar sem ferðamenn kæmu frá fjölmörgum löndum og enskukunnátta væri ekki sjálfgefin meðal allra farþega. Að hans mati væri því eðlilegt að íslenska væri grunnforsenda réttindaprófs.

Markmiðið að trggja gæði þjónustunnar og öryggi farþega

Eyjólfur sagði í þættinum að tilgangur þessara breytinga væri ekki að útiloka einstaklinga heldur að tryggja gæði þjónustunnar og öryggi farþega. Hann benti á að leigubílstjórar bæru mikla ábyrgð í daglegum samskiptum við almenning og því yrði að vera skýr rammi um hæfni og kunnáttu. Með skilvirkari prófum og skýrum tungumálakröfum væri verið að styrkja faglega stöðu greinarinnar og auka traust farþega.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila