Ferðamálastofna og Almannavarnir undirbúa aðgerðir og skipulag vegna sólmyrkva

Ferðamálastofa vinnur nú, í samstarfi við Almannavarnir, að undirbúningi og skipulagningu aðgerða vegna almyrkva sem verður sýnilegur á Íslandi 12. ágúst næstkomandi. Markmiðið er að meta fyrirfram hvaða áhrif viðburðurinn gæti haft á samgöngur og innviði ferðaþjónustunnar.

Metið álag á samgöngur og þjónustu

Í vinnunni er meðal annars horft til framboðs og nýtingar bílaleigubíla sem og burðargetu bókunarstöðu og framboðs farþegaskipa og báta. Með þessu er leitast við að fá heildstæða mynd af því hvernig innviðir standast mögulegt álag ef fjöldi gesta eykst vegna almyrkvans.

Fyrirtæki kölluð til samstarfs

Til að tryggja raunhæft mat á stöðunni hefur Ferðamálastofa óskað eftir þátttöku fyrirtækja í könnun um viðbúnað og afkastagetu. Svör fyrirtækjanna verða nýtt í greiningar- og skipulagsvinnu sem unnin er sameiginlega af Ferðamálastofu og Almannavörnum í aðdraganda viðburðarins.

Fyrir þau fyrirtæki sem hafa áhuga á að taka þátt er rétt að benda á að hægt er að senda tölvupóst á netfangið fré[email protected] til þess að fá könnunina senda.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila