
Undanfarna daga hefur verið talsverð umræða um þær hættur sem ferðamenn geta lent í ef ekki er varlega farið. Miklar umræður hafa skapast um málið. Á samfélagsmiðlum hafa margir furðað sig á því hvernig á því standi að hvað eftir annað komi upp atvik þar sem erlendir ferðamenn hafa komið sér í stórhættulegar aðstæður á ferðalögum sínum um landið.
Fyrr í sumar birti Danielius Vebras ljósmyndari og kvikmyndatökumaður myndband á Facebook og Instagram þar sem sjá má ferðamenn setja sig í stórhættu við að horfa ofan í gilið neðan fossins með því að fara út í miðja ána rétt nokkrum metrum ofan við fossinn Glym en fossinn er næsthæsti foss landsins en hann er 198 metra hár.
Á myndbandinu sem er birt hér að neðan má sjá að ferðamennirnir eru að reyna að fóta sig í ánni og hefði ekki mikið þurft út af að bregða til þess að einhver ferðamannanna eða jafnvel allur hópurinn félli ofan í fossinn.
